Ásberg fasteignasala kynnir eignina: Grænaborg 14, 190 Vogar, birt stærð 106.2 m².
Fimm herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi, staðsett við Grænaborg 14 í Grænubyggð í Vogum. Um er að ræða endaíbúð í 12 íbúða fjölbýlishúsi.
Fjölbýlishúsið er byggt á vandaðan máta, vel einangrað og klætt að utan með varanlegri álklæðningu. Arkís sá um hönnun verksins og er húsið afar glæsilegt.
Sérinngangur
4 svefnherbergi
Verönd til suðurs
Bílaplan með aðgengi að hleðslustöð
Hönnun frá Arkís, varanleg álklæðning að utan
Skipulag: Anddyri, hol, baðherbergi með þvottaaðstöðu, fjögur svefnherbergi, eldhús og stofa. Vandað parket er á gólfum og flísar á votrýmum.
Nánari lýsing eignar
Forstofa er með fataskáp ásamt fatahengi.
Eldhúsið er með fallegri innréttingu og rúmgóðri eyju sem hægt er að sitja við. Vönduð heimilistæki fylgja og gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu.
Baðherbergið er með flísalögðu gólfi og hluta veggja, walk-in sturtu, hvítri innréttingu og tengjum fyrir þvottavél og þurrkara.
Hjónaherbergið er með fataskáp.
Barnaherbergin eru þrjú talsins. Eitt þeirra er teiknað sem geymsla (með glugga) og því auðvelt að nýta sem fjórða svefnherbergið.
Staðsetning
Um er að ræða vel staðsetta endaíbúð á góðum stað í Vogum, með tyrfðri lóð, svölum í suður og bílaplani með aðgengi að hleðslustöð. Stutt er í alla helstu þjónustu, s.s. verslun, grunn- og leikskóla, íþróttamiðstöð og sundlaug.
Allar nánari upplýsingar veita sölumenn Ásbergs í síma 421-1420 eða á skrifstofu að Hafnargötu 27. www.asberg.is asberg@asberg.is
Jón Gunnarsson, löggiltur fasteignasali í síma 894-3837, jon@asberg.is
Þórunn Einarsdóttir síma 898-3837, thorunn@asberg.is
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu er kr. 69.900 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Ásberg fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.