Guðmundur Þór Júlíusson og Ástþór Reynir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:Vallarás 5, 110 Reykjavík. Sérlega falleg, björt og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á 3. hæð í góðu lyftuhúsi á frábærum stað í Árbænum. Birt stærð eignarinnar er 56,5m2, þar af er 3,8m2 geymsla með góðri lofthæð í sameignarrými á jarðhæð.
Bókið skoðun hjá Gumma Júl í síma 858-7410 eða með tölvupósti á netfangið gj@remax.is eða á Ástþór Reyni í síma 899-6753 eða með tölvupósti á netfangið arg@remax.isNánari lýsing:Íbúðin snýr í suður og nýtur því góðrar birtu og útsýnis.
Forstofa/Anddyri flísar á gólfi og rúmgóður fataskápur.
Hol: Björt stofa/borðstofa í opnu rými.
Baðherbergi: með baðkari með sturtuaðstöðu.
Eldhús: er með dökkri innréttingu, ísskápur og uppþvottavél fylgja. Nýleg blöndunartæki.
Hjónaherbergi: Rúmgott með fataskáp.
Helstu framkvæmdir:
2018: Baðherbergi gert upp.
2022: Epoxy húðaðar svalirnar og málað, einnig málað timbur bita.
2023: Skipt út opnanlegu fagi í svefnherbergi.
2024: Skipt út stofu glugga í heilu lagi.
Stutt er í skóla, leikskóla, útivist, verslun, þjónustu, líkamsræktarstöðvar og hina margrómuðu Árbæjarlaug. Mikið af göngu- og hjólastígum í fallegri náttúru í nánasta umhverfi.Allar nánari upplýsingar um eignina veitir: Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma
858-7410 eða gj@remax.is
Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma
899-6753 eða arg@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.