DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 21. sept. 2026

Tröllhólar 37

EinbýlishúsSuðurland/Selfoss-800
190.7 m2
6 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
112.900.000 kr.
Fermetraverð
592.029 kr./m2
Brunabótamat
97.700.000 kr.
Byggt 2006
Pallur
Heitur pottur
Hleðslustöð
Fasteignanúmer
22801222
Húsgerð
Einbýlishús

Fasteignasalan Heimaland ehf. kynnir  6 herbergja vel skipulagt og mikið endurnýjað 190 fm einbýlis hús í Hólahverfinu á Selfossi í lokaðri götu. Stutt ganga fyrir börnin í Sunnulækjaskóla. Fjölbrautaskólinn FSU og leikskólar í göngufæri. 5 svefnerbergja íbúðarhúsið hentar td vel stærri fjölskyldum. Eignin Tröllhólar 37 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 228-0122, birt stærð 190.7 fm.  Hleðsla fyrir rafmagnsbíl. Sérlega góð eign.
 
Nánari upplýsingar veitir Guðný Guðmundsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8216610, tölvupóstur gudny@heimaland.is.


Íbúðin er með björtu stóru opnu endurnýjuðu eldhúsi frá 2020,með hvítri skápamikilli innréttinu, eyju með eldunaraðstöðu þar sem viftan er ofan í borðinu og kvartssteinn í borðplötum.
Hátt til lofts er í  Stofunni sem er opin við borðstofuna og eldhúsið, gengið er þaðan út á sólpallinn, skemmtilegt opið fjölskyldurými.
Sjónvarpshol milli alrýmis og svefnherbergisgangs. Rúmgott baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum,með glugga og stórum sturtuklefa ásamt handklæðaofni, hvítu upphengdu salerni og vaski í hvítri innréttingu. 
Fögur Svefnherbergin eru rúmgóð og björt með fataskápum,  ásamt einu minna herbergi inn af innganginum.
 Forstofan er stór og tekur vel á móti manni með stórum fataskápum. Þaðan er gengið inn á milligang þar sem er;
eitt herbergi, gestasalerni (tenging f. sturtu), þvottasvæði og bílskúr. 
Innréttingar
eru hvítar í eldhúsi og baðherbergi. Sléttar eikar innihurðar. Fataskápar flestir eikar. Gluggakarmar að innan eru hvítmálaðir. Gólfefnin eru ílangar ljósar flísar á flestum gólfflötum.
Bílskúrinn er með hliðarinngangshurð og og rafmagnsopnara í innkeyrsluhurð, nýttur í dag sem geymsla (efra loft), vinnuaðstaða og þvottavéla aðstaða í góðri inngréttingu. 

Húsið er klætt að utan með ljósgrárri aluzink klæðningu og harðvið, dökk máluðum gluggum, hurðum og þakkannti. .Varmaskiptir settur upp 2021.

Lóðin er með hellulögðu bílaplani og inngangi, sólpalli í suðurátt  eð heitum potti, geymsluskúr og skjólvegg. Góðar grasflatir norðan og austan við húsið.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald kaupanda er skv. verðskrá. 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Heimaland hvetur því viðskiptavini sína og væntanlega kaupendur af fasteignum að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir tilboðsgerð eða eftir atvikum fyrir kaupsamningsgerð. Ef þurfa þykir ættu væntanlegir kaupendur að leita til þar til bærra sérfræðinga um aðstoð við slíka skoðun. 

www.heimaland.is,  Austurvegur 6, 800 Selfoss, Fasteignasalan Heimaland ehf.

 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignasalan Heimaland ehf.
http://heimaland.is/

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Grenilundur 2
Á einni hæð
Opið hús:30. sept. kl 16:30-17:00
Skoða eignina Grenilundur 2
Grenilundur 2
210 Garðabær
184.5 m2
Einbýlishús
524
970 þ.kr./m2
178.900.000 kr.
Skoða eignina Lynghólar 18
Bílskúr
Heitur pottur
Opið hús:27. sept. kl 14:00-14:30
Skoða eignina Lynghólar 18
Lynghólar 18
210 Garðabær
205.5 m2
Raðhús
423
910 þ.kr./m2
187.000.000 kr.
Skoða eignina Háteigur 13
Bílskúr
Á einni hæð
Opið hús:24. sept. kl 17:30-18:00
Skoða eignina Háteigur 13
Háteigur 13
230 Reykjanesbær
205 m2
Einbýlishús
514
600 þ.kr./m2
122.900.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 21
Á einni hæð
Skoða eignina Vetrarbraut 21
Vetrarbraut 21
815 Þorlákshöfn
95.9 m2
Raðhús
313
750 þ.kr./m2
71.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin