DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 2. okt. 2026

Melalind 6

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
104.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
82.900.000 kr.
Fermetraverð
795.585 kr./m2
Brunabótamat
58.550.000 kr.
Byggt 1997
3. hæð
Svalir
Hleðslustöð
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
22297682
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Aldir Fasteignir og Freyja Rúnarsdóttir Löggiltur fasteignasali (s: 694 4122 / freyja@aldirfasteignir.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu: 

Um er að ræða virkilega fallega og rúmgóða 3ja herbergja íbúð á 3. hæð (efstu) á þessum vinsæla stað í snyrtilegu fjölbýli við Melalind 6 í Kópavogi. Virkilega vel umgengin sameign. Mjög fallegt útsýni er frá stofu og eldhúsi til vesturs yfir Kópavogsdalinn. Birt stærð skv. HMS: Íbúðin er 96 fm merkt 03-01 og geymslan er merkt 01-04 og er hún 8,2 fm eða samtals: 104,2 fm. Þakið var yfirvarið og málað árið 2018 og stigagangur málaður og skipt um teppi árið 2017.

Nánari lýsing eignar: Komið er inn í hol með innbyggðum fataskáp. Á hægri hönd við inngang er stofa með útgangi út á rúmgóðar svalir með timbur flísum á svalargólfi. Eldhúsið er með fallegri nýlegri grárri háglans innréttingu (frá árinu 2019), mósaíkflísar milli efri og neðri skápa, span helluborð. Mjög rúmgóður borðkrókur. Innaf eldhúsinu er búr með nýlegri innréttingu. Flísalagt baðherbergi í hólf og gólf, sér sturta og baðkar með sturtu. Snyrtileg innrétting með efri og neðri skápum og spegli á milli. Tengi fyrir þvottavél á baðherbergi. Tvö svefnherbergi og er fataskápur í báðum herbergjum. Eigninni fylgir 8,2 fm sérgeymsla með hillum. Sameiginlega hjóla- og vagnageymsla. Gólfefni íbúðar: parket og flísar á gólfum. 

ÞETTA ER FALLEG EIGN Í RÓTGRÓNU OG FJÖLSKYLDUVÆNU HVERFI ÞAR SEM STUTT ER Í VERSLANIR OG ÞJÓNUSTU.
 
Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Freyja Rúnarsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 694 4112 eða freyja@aldirfasteignir.is
 


Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Árakur 5
Skoða eignina Árakur 5
Árakur 5
210 Garðabær
105.7 m2
Fjölbýlishús
312
813 þ.kr./m2
85.900.000 kr.
Skoða eignina Framnesvegur 12 (með aukaíbúð)
Opið hús:07. okt. kl 17:30-18:00
Framnesvegur 12 (með aukaíbúð)
101 Reykjavík
83.4 m2
Fjölbýlishús
422
970 þ.kr./m2
80.900.000 kr.
Skoða eignina Bergstaðastræti 48
Bergstaðastræti 48
101 Reykjavík
85.7 m2
Fjölbýlishús
312
886 þ.kr./m2
75.900.000 kr.
Skoða eignina Kópavogsbrún 1
Skoða eignina Kópavogsbrún 1
Kópavogsbrún 1
200 Kópavogur
130.1 m2
Fjölbýlishús
413
922 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin