VALHÖLL FASTEIGNASALA OG VÍÐIR ARNAR KYNNA HAFNARSTRÆTI 16 – SÖGULEGT HÚS Í HJARTA REYKJAVÍKUR
Hafnarstræti 16 er sögufrægt timburhús frá árinu 1824, staðsett í Kvosinni í næsta nágrenni Lækjartorgs. Húsið á sér ríka sögu og var þekkt undir nafninu hótel Alexandra. Innra skipulag samanstendur af sýningar- og fundarsal, skrifstofum, vinnustofum og stoðrýmum.Fyrsta hæð
Forstofa og stigagangur: Inngangur frá Hafnarstræti í forstofu með stiga á aðra hæð.
Sýningar- og fundarsalur: Um 44,4 fm salur er austan meginn á jarðhæðinni.
Skrifstofa: með aðgengi bæði frá sal og innri gangi.
Bókasafn og seturými: er um 14 fm.
Eldhús: er í miðhluta hæðarinnar
Skrifstofa: Um 14,7 fm skrifstofa í vesturhluta hússins, inn af eldhúsi.
Vinnurými: er í vesturhlutanum.
Snyrtingar: Tvær snyrtingar eru á hæðinni
BakinngangurBakgarður: Afmarkað útisvæði með setuaðstöðu og listaverkagarði á teikningu. Aðgengi er frá sýningar- og fundarsal og bakinngangi.
Önnur hæðStigagangur og gangrými: Komið er upp frá aðalinngangi í stigagang sem tengist fundarherbergi og skrifstofuhluta hæðarinnar.
Skrifstofur: Fjögur aðskilin skrifstofu- og vinnurými í austurhluta hæðarinnar. Rýmin tengjast innbyrðis með hurðum.
Fundarherbergi: með aðgengi frá aðalstigagangi og tengingu við vinnustofu.
Vinnustofur: Tvær vinnustofur í vesturhluta hússins, með innbyrðis tengingu.
Stofa og setuaðstaða: Aðskilin stofa í miðhluta hæðarinnar, inn af sameiginlegu eldhúsi.
Sameiginlegt eldhús: tengir saman stofu, vinnustofu og bakstigagang.
Snyrting: Um 3,3 fm snyrting með salerni og handlaug.
Stoðrými: Ræstiaðstaða.
RishæðOpið rými þegar komið er upp stigann
Stórt herbergi vestan meginn sem er nýtt í dag sem gistiaðstaða
Herbergi austan meginn sem er nýtt í dag sem gistiaðstaða
Saga hússins
Hafnarstræti 16 á sér merka sögu sem tengist verslun og mannlífi í miðborg Reykjavíkur um aldir. Húsið er skráð byggt árið 1824, en áður hafði verslunarhús sem kallað var Jóska húsið staðið á lóðinni. Meðal þeirra sem hafa búið í húsinu var Jón Árnason þjóðsagnasafnari. Húsið var upphaflega reist sem verslunar-, pakk- og íbúðarhús. Árið 1853 var settur á það hár miðjukvistur og um 1880 var það hækkað í tvær hæðir. Frá síðari hluta 19. aldar og fram á upphaf þeirrar 20. var Hótel Alexandra rekið í húsinu. Síðar hýsti það skrifstofur Eimskipafélags Íslands eftir brunann mikla árið 1915. Ytra borð hússins var friðlýst árið 1991 og stendur það í dag sem hluti af sögu gömlu Reykjavíkur. Umfangsmiklar viðgerðir og endurbygging stóðu yfir árið 2001. Einnig var farið í töluvert viðhald á húsinu árið 2024 á 200 ára afmæli þess. Húsið er friðlýst og tekur friðlýsingin til ytra borðs þess.Húsið sameinar yfir 200 ára sögu, einstakan karakter og eftirsótta staðsetningu í hjarta Reykjavíkur. Hér gefst sjaldgæft tækifæri til að eignast sögufræga fasteign þar sem fjölbreytt rými og iðandi mannlíf miðborgarinnar skapa sérstaka umgjörð um starfsemi.Nánari upplýsingar veitir:Víðir Arnar Kristjánsson löggiltur fasteignasali / s.8542226 / vidir@valholl.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.