Verð miðast við 75% kaup
Valshlíð 3 – íbúð 405, 102 ReykjavíkGlæsileg og einstaklega vel skipulögð
3ja herbergja sýningaríbúð á 4. hæð í vesturenda Hlíðarhorns. Íbúðin er björt og falleg með gólfsíðum gluggum, rúmgóðu alrými og útgengi á vestursvalir með fallegu útsýni. Um er að ræða eina af sýningaríbúðum Valshlíðar 3 og
miðað við sameignarlausn S8 er 75% verð íbúðarinnar 65.925.000kr.Skráð stærð skv.
78,2 fm, þar af 6,4 fm geymsla í kjallara.
Helstu atriði- Sýningaríbúð í Valshlíð 3.
- 3ja herbergja íbúð á 4. hæð með vestursvölum og útsýni.
- 75% verð í sameignarlausn: 65.925.000 kr.
- Tvö svefnherbergi, fallegt alrými og innréttingarþema Hlíð 1.
Nánari lýsingValshlíð 3 –
íbúð 405 er glæsileg og björt
útsýnisíbúð þar sem vandað efnisval og vel útfært skipulag njóta sín afar vel. Komið er inn í anddyri með góðum fataskápum og þaðan inn í rúmgott alrými þar sem eldhús og stofa/borðstofa mynda fallega og samræmda heild. Gólfsíðir gluggar og útgengi á rúmgóðar vestursvalir gefa rýminu létt yfirbragð, mikla birtu og fallegt útsýni.
Eldhúsið er sérlega smekklegt með fallegri hnotuáferð, ljósyrjóttum quartz-steini og vönduðum Siemens raftækjum.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með fataskápum, og
baðherbergið er vandað með walk-in sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Íbúðin er
fullbúin og er útbúin sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu, en sem
sýningaríbúð gefur hún jafnframt einstaklega góða mynd af rýminu, skipulaginu og þeim gæðum sem einkenna
Hlíðarhorn.
Fullt verð á íbúðinni er : 87.900.000krNánari upplýsingar veita:Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
Ómar Hjaltason astmf. S:7789090 eða omar@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.