DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 17. sept. 2026

Blikanes 1

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
297.5 m2
8 Herb.
5 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
269.000.000 kr.
Fermetraverð
904.202 kr./m2
Brunabótamat
166.200.000 kr.
Byggt 1966
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
20693331
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Böðvar og Borg fasteignasala kynna til sölu: Blikanes 1, 210 Garðabær – glæsilegt 8 herbergja, 297,5 m² einbýlishús á eftirsóttum stað á Arnarnesi. Húsið stendur á stórri og fallegri 1.273 m² eignarlóð við enda götunnar, garðurinn snýr í suður og þaðan er útsýni yfir voginn. Tvöfaldur bílskúr og góð aðkoma.

Skipulag, aðalhæð: Anddyri, gestasalerni, baðherbergi, tvö svefnherbergi, sjónvarpsherbergi, skrifstofa, stofa og borðstofa, eldhús, þvottahús, upphituð sólstofa og tvöfaldur bílskúr.
Neðri hæð: Stofa/fjölnotarými, svefnherbergi, geymsla og baðherbergi.
Nánar um eignina:
Komið er inn í rúmgott anddyri með flísum á gólfi. Inn af anddyrinu er flísalagt gestasalerni með glugga. Frá anddyrinu er komið inn í opið hol sem tengir saman helstu rými aðalhæðarinnar. Flísar eru á gólfi í holi og fallegar franskar glerhurðir, opið skipulag og stórir gluggar skapa gott flæði og hleypa birtu um húsið.
Sjónvarpsherbergið er með parketi á gólfi, það nýtist vel sem sjónvarps- eða fjölskylduherbergi og þaðan liggur opinn stigi með viðarþrepum og handriði niður á neðri hæð hússins.
Stofa og borðstofa mynda saman sérlega glæsilegt og rúmgott alrými. Flísar eru á gólfi og stórir gluggar sem veita góða birtu og fallega sýn út í gróinn garðinn. Í stofunni eru áberandi steinklæddur arinn sem setur svip á rýmið og skapar hlýlega stemningu. Borðstofan er opin við bæði stofu og eldhús og þar er gott pláss fyrir stórt borðstofuborð, gólfsíðir gluggar.
Frá borðstofunni er gengið inn í upphitaða sólstofu með parketi á gólfi sem er framlenging á stofu- og borðstofurýmum hússins. Þar er gott rými fyrir bæði setu- og borðaðstöðu. Úr sólstofunni er gengið beint út á stóran og skjólsælan viðarpall sem snýr í suður.
Eldhúsið er rúmgott og vel skipulagt og opnast að borðstofu. Þar er ljós innrétting með miklu skápa- og vinnuplássi, glerhurðum á hluta efri skápa og lýsingu undir innréttingum, rúmgóð eldunareyja með helluborði og háfi yfir. Ofn og örbylgjuofn eru í vinnuhæð og stór tvöfaldur kæli- og frystiskápur er með vatns- og klakavél, flísar á gólfi.
Inn af eldhúsi er þvottahús með flísum á gólfi. Þar er innrétting, vinnuborð, vaskur og aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Þar er gluggi og úr þvottahúsinu er útgengi að framhlið hússins þaðan sem gengið er inn í bílskúr.
Svefnherbergin og aðalbaðherbergið eru staðsett á herbergjagangi með parketi á gólfi. Hjónaherbergið er rúmgott með parketi á gólfi, þar er stór gluggi með útsýni út í garðinn. Inn af hjónaherberginu er fataherbergi með skápaplássi. Annað svefnherbergi aðalhæðar er einnig parketlagt og með fataskáp. Skrifstofan er með parketi á gólfi og gólfsíðum gluggum með útsýni út í garð, það getur eftir þörfum nýst sem vinnuherbergi, gestaherbergi eða viðbótarsvefnherbergi.
Aðalbaðherbergið hefur verið endurnýjað. Það er með flísum á gólfi og veggjum, gólfhita, handklæðaofni, flísalagðri sturtu og glugga.
Neðri hæðin er skráð um 58 m² og er innangengt á hana frá sjónvarpsherbergi aðalhæðar. Hæðin var áður með sérinngangi og nýtt sem aukaíbúð. Þar er nú stórt og parketlagt fjölnotarými sem nýtist sem stofa og skrifstofa. Rýmið er rúmgott og býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, m.a sem fjölskylduherbergi, vinnuaðstaða eða aðstaða fyrir eldri börn. Auðvelt væri að stúka hluta rýmisins af og útbúa þar viðbótarherbergi. Á hæðinni er einnig parketlagt svefnherbergi með skápum, flísalagt baðherbergi með sturtu og glugga ásamt góðu geymslurými.
Tvöfaldur bílskúr er innbyggður í húsið og er skráður 40,6 m² samkvæmt teikningu. Bílskúrinn er afar snyrtilegur og rúmgóður. Hann er með skápum og góðu geymsluplássi, heitu og köldu vatni og stórum gluggum sem snúa út í garðinn. Fyrir framan bílskúrinn er innkeyrsla og góð bílastæði. Snjóbræðslukerfi er í stétt norðan við húsið.
Lóð og umhverfi:
Húsið stendur á stórri 1.273 m² eignarlóð við enda götunnar. Aðkoman að húsinu er góð með hellulögðum stéttum, trjám, runnum og klipptum limgerðum.
Bakgarðurinn snýr í suður og er einstaklega stór, skjólsæll og vel gróinn.Grasflötur, hávaxin tré, limgerði og fjölbreyttur gróður sem veitir gott skjól og næði. Frá garðinum er fallegt útsýni yfir voginn. Við húsið er stór viðarpallur sem er að hluta afmarkaður með skjólgirðingu, úr sólstofunni er gengið beint út á pallinn.
Endurbætur og viðhald:
Núverandi eigendur eignuðust húsið árið 1997 og hafa síðan ráðist í umfangsmiklar endurbætur. Meðal annars hafa neysluvatnslagnir, ofnar og ofnalagnir verið endurnýjuð, auk þaks, glers og glugga að hluta. Þá hefur verið byggð upphituð sólstofa, frárennslisbrunnar á lóð endurnýjaðir og húsið innréttað að nýju. Aðalbaðherbergi hefur einnig verið endurnýjað. Húsið ber þess glögg merki að hafa fengið gott og reglulegt viðhald. Um er að ræða einstaklega rúmgóða og vel staðsetta eign á eftirsóttum stað á Arnarnesi. 

Nánari upplýsingar veitir Böðvar Sigurbjörnsson lögfræðingur M.L. og lgf., í síma 660-4777 eða bodvar@fastborg.is
Sjá einnig:
fastborg.is/
Smelltu hér til að fylgjast með mér á Facebook
Smelltu hér til að fylgja mér á Instagram

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Borg fasteignasala
http://fastborg.is

Myndir (39)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Litlabæjarvör 15
Opið hús:17. sept. kl 17:00-17:30
Litlabæjarvör 15
225 Garðabær
282.2 m2
Einbýlishús
634
776 þ.kr./m2
219.000.000 kr.
Skoða eignina Hraunbraut 37
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Hraunbraut 37
Hraunbraut 37
200 Kópavogur
159.8 m2
Einbýlishús
423
920 þ.kr./m2
147.000.000 kr.
Skoða eignina Örvasalir 11
IMG_9346.jpg
Skoða eignina Örvasalir 11
Örvasalir 11
201 Kópavogur
295.4 m2
Einbýlishús
724
877 þ.kr./m2
259.000.000 kr.
Skoða eignina Smáratún 13
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Opið hús:17. sept. kl 17:30-18:00
Skoða eignina Smáratún 13
Smáratún 13
225 Garðabær
229.1 m2
Einbýlishús
425
698 þ.kr./m2
159.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin