RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Einstaklega falleg og björt fjögurra herbergja 110,2 fm. endaíbúð á 3. hæð í góðu lyftuhúsi við Kristnibraut 97. Íbúðin er 103,4 fm. og telur forstofu, opið alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu með útgengt út á svalir. Þrjú rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Sérgeymsla er staðsett í sameign 6,8 fm. að stærð. Vel staðsett bílastæði fylgir í bílskýli.
Eignin er laus við kaupsamning.* Sérinngangur af svalargangi
* Björt og falleg íbúð með þrjú rúmgóð svefnherbergi
* Þvottahús innan íbúðar
* Bílastæði í bílskýli og næg sameiginleg bílastæði á lóð
* Rafbílahleðslustöðvar eru við húsiðKÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU EIGN Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR
FÁÐU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR
Nánari upplýsingar veitir Guðrún Lilja í síma 867-1231 eða með tölvupósti gudrunlilja@remax.is
Fallegt og fjölskylduvæn eign á eftirsóttum stað í Grafarholtinu. Stutt er í leik- og grunnskóla og alla helstu þjónustu. Stutt í fallega náttúru og mörg falleg útivistarsvæði í næsta nágrenni.Nánari lýsing: Íbúðin er með sérinngangi af svölum við enda, mjög björt og vel skipulögð. Sameign er öll hin snyrtilegasta og falleg aðkoma er að húsinu.Forstofa er rúmgóð með fataskápum, flísar á gólfum. Þaðan er gengið inní
opið hol sem tengir saman helstu vistarverur.
Eldhús er með ágætum innréttingum með góðu skápaplássi, flísar á milli skápa. Helluborð, gufugleypir og bökunarofn í vinnuhæð. Parket á gólfum. Ný uppþvottavél og ísskápur getur fylgt.
Borðstofa og stofa er í björtu og opnu parketlögðu alrými með úttengt út á
svalir til suðvesturs.
Svefnherbergin eru þrjú, rúmgóð og björt með fataskápum. Parket á gólfum.
Baðherbergi er með ágætri vaskinnréttingu og góðu skápaplássi. Salerni upphengt og baðkar með sturtuaðstöðu. Góður opnanlegur gluggi, gólf er flísalagt og veggir að hluta.
Þvottahús er flísalagt, með skolvaski og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla er staðsett í sameign um 6,8 fm. að stærð ásamt sameiginlegri
vagna og hjólageymslu.Bílastæði er í bílskýli við húsið, mjög vel staðsett.
Garður er sameiginlegur, stór og snyrtilegur.
Ath. fyrirhugað fasteignamat 2027 er kr. 78.250.000,-
Nánari lýsing: 2023 var skipt um þakdúk og einangrun.
2025 var skipt um útiljós á svölum og við bílastæðin og sett upp hleðslustöðvar. Skipt um ljós á geymslugangi.
Væntanlegar framkvæmdir: Endurnýja dyrasímakerfið.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.