ALLT fasteignasala kynnir til sölu neðri hæð að Sóltúni 7 í Keflavík.
Eignin skiptist í anddyri, hol, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Birt stærð eignar er 91.5 fm. Nánari upplýsingar veita:Dísa Edwards Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5510, tölvupóstur disa@allt.isJóna Björg Löggiltur fasteignasali, í sima 560-5506, tölvupóstur jona@allt.isUm er að ræða íbúð á góðum stað í Holtaskólahverfinu þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttir og aðra þjónustu.
Eignin er að mestu leyti í upprunalegu ástandi að innan og býður því upp á möguleika fyrir nýja eigendur að endurnýja og aðlaga að eigin þörfum.
Húsið hefur fengið viðhald að utan á síðustu árum, þar sem meðal annars hefur þakjárn verið endurnýjað, hluti glugga skiptur út og utanhússviðhald unnið að hluta.
Eign á vinsælum stað þar sem helsta þjónusta og tómstundir eru í þægilegu göngufæri.
* Þakjárn endurnýjað
* Gluggar endurnýjaðir að hluta
* Skólp úr plasti
* Húsið klætt að utan að hlutaVertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.