DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 5. okt. 2026

Brekkulækur II 0

Atvinnuhúsn.Norðurland/Hvammstangi-531
860.9 m2
28 Herb.
Verð
199.500.000 kr.
Fermetraverð
231.734 kr./m2
Fasteignamat
76.520.000 kr.
Brunabótamat
394.095.000 kr.
Mynd af Svavar Friðriksson
Svavar Friðriksson
Löggiltur fasteignasali.
Byggt 1936
Jarðhæð
Fasteignanúmer
2133283
Landnúmer
219930
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svavar Friðriksson, löggiltur fasteignasali, og Fasteignasalan Torg kynna: *** 4,3% eignarhlutur í Miðfjarðará, sem hefur skilað góðum árlegum tekjum *** ÖLL SKIPTI SKOÐUÐ *** Eignin Brekkulækur II 0, 531 Hvammstangi, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 213-3283 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi **
Eignin Brekkulækur II 0 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-3283, birt stærð 860.9 fm.
Nánari upplýsingar veitir Svavar Friðriksson Löggiltur fasteignasali., í síma 623-1717, tölvupóstur svavar@fstorg.is.

Brekkulækur II og III – einstök ferðaþjónustueign á Norðurlandi vestra
Um er að ræða einstakt tækifæri til kaupa á rótgróinni og vel uppbyggðri ferðaþjónustueign ásamt tveimur jörðum, miklum og fjölbreyttum húsakosti, fullbúnu hesthúsi, ræktuðu landi og verðmætum veiðihlunnindum í Miðfjarðará.
Með í kaupunum fylgir rekstrartengdur búnaður og innbú sem nauðsynlegt er til áframhaldandi starfsemi. Á staðnum er hitaveita og ljósleiðari.

Brekkulækur er einstaklega vel staðsettur í fallegu og grónu umhverfi á Norðurlandi vestra, á hentugum stað milli Reykjavíkur og Akureyrar. Stutt er í eina þekktustu laxveiðiá landsins, Miðfjarðará, en eigninni fylgja verðmæt veiðihlunnindi þar.
Ferðaþjónusta hefur verið rekin á staðnum um árabil og hefur starfsemin byggt upp gott orðspor og sterk tengsl í gegnum tíðina.
Seljandi er opinn fyrir því að skoða eignaskipti.
Heimasíða starfseminnar: www.abbi-island.is

Fastanúmer og landeignir
Eignin skiptist í tvær landeignir:

Brekkulækur II
Fastanúmer: F213-3283
Landnúmer: L219930

Brekkulækur III
Fastanúmer: F231-7856
Landnúmer: L217343

Brekkulækur II
Brekkulækur II er 2,4 hektara jörð þar sem meginhluti ferðaþjónustunnar er staðsettur.
Á jörðinni eru meðal annars 800,9 fm gistihús, 12,3 fm svefnskáli og 47,7 fm starfsmannahús.
Gistihúsið var upphaflega reist árið 1936 en hefur síðan verið stækkað og mikið endurnýjað, meðal annars á árunum 1993 og 2012. Húsinu hefur verið vel við haldið og er það í góðu ásigkomulagi.
Í gistihúsinu er meðal annars gestamóttaka, setustofur, matsalur, rúmgott og vel búið eldhús, snyrtingar og baðherbergi, auk fjölbreyttra gisti- og íbúðarrýma.
Gistirýmin samanstanda af:
7 tveggja manna herbergjum með sérsnyrtingu
3 tveggja manna herbergjum með vaski og aðgangi að sameiginlegu baðherbergi
6 eins manns herbergjum með aðgangi að sameiginlegu baðherbergi
1 fjögurra manna fjölskylduherbergi með sérinngangi og baðherbergi
1 tveggja herbergja íbúð með eldhúsi og baðherbergi
1 þriggja herbergja íbúð
1 fimm herbergja íbúð, sem nú er nýtt sem aðsetur eiganda
Húsakosturinn býður því upp á mikinn sveigjanleika, bæði fyrir áframhaldandi ferðaþjónustu, starfsfólk og eigendur.
Starfsmannahús
Á Brekkulæk II er einnig 47,7 fm A-bústaður, byggður árið 1989, sem hefur verið nýttur sem starfsmannahús.
Húsið skiptist í tvö svefnherbergi, eldhús, setustofu og baðherbergi og er í nokkuð góðu ástandi.

Brekkulækur III
Brekkulækur III er 239,6 hektara jörð með miklu landrými, ræktuðu landi, góðum húsakosti og verðmætum veiðihlunnindum.
Á jörðinni eru meðal annars:
82,1 fm geymsla, byggð árið 1930
gömul hlaða
um 24 hektarar af ræktuðu landi
465,8 fm fullbúið hesthús
upphituð tækjageymsla með snyrtingu og heitu og köldu vatni
tveggja herbergja íbúð yfir tækjageymslu
4,3% eignarhlutur í Miðfjarðará, sem hefur skilað góðum árlegum tekjum
Hesthús og tækjageymsla
Hesthúsið er 465,8 fm, byggt árið 2015 og mjög vel útbúið.
Þar eru 10 eins hests stíur og 4 tveggja hesta stíur, auk tækjageymslu, snyrtingar, upphitunar og rennandi heits og kalds vatns.
Yfir tækjageymslunni er jafnframt um 50 fm tveggja herbergja íbúð og er innangengt á milli rýma.
Mannvirki á Brekkulæk III eru almennt í ágætu ástandi.

Veiðihlunnindi og réttindi
Brekkulækur á aðild að Veiðifélagi Miðfjarðarár og eigninni fylgja umtalsverð laxveiðihlunnindi í Miðfjarðará sem hafa skilað góðum tekjum árlega.
Jörðin á einnig aðild að Veiðifélagi Arnarvatnsheiðar og Tvídægru. Tekjur félagsins af sölu veiðileyfa eru meðal annars nýttar til uppbyggingar og viðhalds skála, vega og annarra innviða á afrétti Miðfirðinga.
Félagsmenn geta jafnframt, eftir nánara samkomulagi og í samráði við formann veiðifélagsins, fengið heimild til eigin veiða í vötnum á heiðinni.
Einstök eign með mikla möguleika
Brekkulækur er einstaklega áhugaverð eign fyrir þá sem vilja sameina ferðaþjónustu, búsetu og sveitalíf á fallegum stað á Norðurlandi vestra.
Hér er þegar til staðar umfangsmikill húsakostur og aðstaða til ferðaþjónustu, stór jörð, ræktað land, glæsilegt hesthús og tekjuskapandi veiðihlunnindi.
Eign sem býður upp á fjölmarga möguleika til áframhaldandi reksturs og frekari uppbyggingar fyrir rétta aðila.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR SVAVAR, LGFS, Í SÍMA 623-1717 EÐA SVAVAR@FSTORG.IS






Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
09/02/200710.854.000 kr.11.900.000 kr.719.6 m216.536 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1989
47.7 m2
Fasteignanúmer
2133283
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
10
Húsmat
11.650.000 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
11.650.000 kr.
Brunabótamat
27.800.000 kr.
Byggt 1982
12.3 m2
Fasteignanúmer
2133283
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
674.000 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
674.000 kr.
Brunabótamat
1.845.000 kr.

Myndir (23)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Jarpstjörn 2
Skoða eignina Jarpstjörn 2
Jarpstjörn 2
113 Reykjavík
775,3 m2
Atvinnuhúsn.
31
Fasteignamat 213.850.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Breiðavík
Skoða eignina Breiðavík
Breiðavík
451 Patreksfjörður
198.050,9 m2
Atvinnuhúsn.
4 þ.kr./m2
790.000.000 kr.
Skoða eignina Árborg verslun Árnesi
Árborg verslun Árnesi
804 Selfoss
190 m2
Atvinnuhúsn.
44
447 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Steinhella 4
Skoða eignina Steinhella 4
Steinhella 4
221 Hafnarfjörður
209,8 m2
Atvinnuhúsn.
357 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin