Falleg og vel skipulögð 3ja-4ra herbergja íbúð með sérinngangi á frábærum stað í Hlíðunum- Tvær bjartar og samliggjandi stofur (auðvelt/fordæmi að breyta annarri í svefnherbergi)
- Tvö rúmgóð svefnherbergi
- Þak endurnýjað 2024
- Frábær staðsetning
Nánari upplýsingar veita:Páll Pálsson Lgf. í síma 775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
Tinna Bryde A.Lgf. í síma 660-5532 eða tinna@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurNánari lýsing:Komið er inn í íbúðina um sérinngang sem leiðir inn í
forstofu, inn af henni er gangur með fatahengi. Þaðan er aðgengi að rýmum íbúðarinnar.
Stofurnar eru tvær, samliggjandi og bjartar, með fallegum gluggum sem hleypa mikilli birtu inn. Hægt er að loka á milli þeirra með rennihurð, sem gefur sveigjanleika í nýtingu rýmisins – til dæmis er auðvelt að breyta annarri stofunni í svefnherbergi.
Eldhúsið er vel nýtt, með snyrtilegri innréttingu og góðu skápaplássi.
Baðherbergið er með sturtuklefa, fallegri innréttingu og góðu skipulagi.
Svefnherbergin eru tvö, bæði rúmgóð og með fataskápum.
Íbúðin er öll parketlögð, nema í forstofu og á baðherbergi þar sem eru flísar og eldhúsi þar sem er dúkur.
Sameiginlegt
þvottahús er í sameign, þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla fylgir íbúðinni.
Þak endurnýjað á síðasta ári ásamt sprunguviðgerða. Raf- og vatsnlagnir endurnýjað 2018.
Skipulag hefur breyst frá upprunalegum teikningum.
Staðsetning:Eignin er afar vel staðsett á vinsælum stað og stutt er í miðbæ, Klambratún og Öskjuhlíð, auk þess sem öll helsta þjónusta, verslanir, kaffihús og skólar eru í næsta nágrenni.
Þetta er
falleg, björt og vel skipulögð íbúð með fjölbreytta nýtingarmöguleika á frábærum stað.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.