Fasteignasalan Hvammur - 466-1600 - gunnar@kaupa.is
Jóninnuhagi 6 íbúð 202 - 3ja herbergja íbúð með sér inngangi á annari hæð í fjölbýli syðst í Hagahverfi með frábæru útsýni - stærð 70,0 m²Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og sér geymslu innan íbúðar.
Forstofan er með ljósum flísum á gólfi og tvöföldum fataskáp.
Eldhúsið er með dökkri L-laga innréttingu með innfeldum ísskap og uppþvottavél.
Stofan og eldhúsið eru í opnu rými með harð parketi á gólfi, þaðan er gengið út á steypta suður verönd.
Svefnherbergin er tvö, bæði með harð parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með dökkri innréttingu, speglaskáp, vegghengdu wc, sturtu og handklæðaofni. Stæði er í innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Geymsla er innan íbúðar, þar eru ljósar flísar á gólfi og opnanlegur gluggi.
Annað:- Gólfhiti er í allri íbúðinni og hljóðdempandi plötur í öllum loftum að baðherbergi undanskildu.
- Búið er að taka inn ljósleiðara.
- Sameiginleg kyndikompa er undir stigapallinum.
- Loxone snjallkerfi er í íbúðinni sem stýrir ljósum og gólfhita.
- Frábært útsýni er úr eigninni
Nánari upplýsingar veitir:
Gunnar Aðalgeir Arason í síma 618-7325 eða á gunnar@kaupa.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.