Vönduð og vel skipulögð 5 herbergja íbúð á vinsælum og eftirsóttum stað að Hringbraut 48 í 101 Reykjavík.Íbúðin er mikið endurnýjuð og er á fyrstu hæð í fallegu húsi. Með íbúðinni fylgir sér bílastæði við vesturhluta hússins.
* Eigandi er opin fyrir skiptum á minni íbúð á svipuðu svæði ( Vesturbæ / Miðbæ )
* 129,9m2 hæð / fjölbýli
* Íbúðin mikið endurnýjuð árið 2018.
* 4 svefnherbergiPáll Pálsson, Lgf / 7754000 / palli@palssonfasteignasala.is
Helen Sigurðardóttir, Lgf / 849-1921 / helen@palssonfasteignasala.iswww.eignavakt.is www.verdmat.is Ráð fyrir kaupendurBirt stærð samkv. HMS er 129,9 m2.
Eignin skiptist í gang, eldhús, 4 svefnherbergi, stofu, baðherbergi, geymslu, sameiginlega hjólageymslu og þvottahús.Gengið er inn í
gang með fatahengi og nýlegu parketi á gólfi.
Eldhús hefur verið endurnýjað með ágætri innréttingu, ofn, helluborð, vegghillur og rými fyrir stórt eldhús/borðstofuborð. Nýlegt parket á gólfi.
Þrjú
svefnherbergi sem eru rúmgóð og með nýlegu parketi á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með stórum innbyggðum fataskáp og nýlegu parketi á gólfi.
Stofan er björt og myndar opið rými með eldhúsi. Nýlegt parket á gólfi.
Baðherbergi er endurnýjað og er flísalagt í hólf og gólf, vegghengt klósett og baðkar/sturta.
Geymsla, (16m2) er í kjallara ásamt sameiginlegu þvottahúsi þar sem pláss er fyrir þvottavél. Möguleiki er að nýta hluta geymslunnar sem vinnuherbergi.
Innangengt er frá íbúð að sameiginlega rýminu og útgengt út í bakgarð/port. í kjallara er er einnig sameiginleg hjólageymsla.
Einkabílastæði fylgir íbúðinn og er við vesturhluta hússins.
Gluggar voru endurnýjaðir 2019 og sett í tvöfalt hljóðeinangrandi gler.
Frábær staðsetning. Göngufæri í leikskóla, grunnskóla og annað menningarlíf miðbæjar Reykjavíkur
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. 450 fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.