Gimli fasteignasala, Ólafur Björn Blöndal og Lilja Hrafnberg löggiltir fasteignasalar kynna:
ODDSPARTUR - ÞYKKVABÆ- MIKLIR MÖGULEIKAR
Mikill húsakostur eða alls 577 fm með miklum nýtingarmöguleikum, frábær staðsetning í jaðri byggðar á 6,7 hektara eignarlandi sem hefur verið deiliskipulagt fyrir meira byggingarmagni.
Hér er myndband af eigninni
Veislusalur (Hlöðueldhúsið) í Þykkvabæ, ásamt íbúðarhúsi, fylgieignum og 5 glerkúluhúsum fyrir ferðamannagistingu. Hlöðueldhúsið er sérlega fallega innréttaður veislusalur með afar vel útbúnu veitingaeldhúsi með aðstöðu fyrir matreiðslunámskeið fyrir hópa og góðri snyrtiaðstöðu. Húsið er skráð 204,5 fm og er allt nýlega uppgert. Íbúðarhúsið er 100,2 fm að stærð á tveimur hæðum. Aðrar fylgieignir eru 146,2 fm geymsluhúsnæði sem hefur að hluta til verið byrjað að innrétta sem íbúðarhúsnæði, 49 fm geymsluhúsnæði og 77,5 fm bogaskemma sem nýtt hefur verið sem gróðurhús en býður upp á mikla möguleika.
Landið er með mikla nýtingarmöguleika, m.a hentar mjög vel undir hestamennsku með fjölbreyttri notkun, bæði er varðar beitarhólf og til að taka á móti t.d. hestahópum þar sem góð aðstaða er fyrir bæði hross og menn.
Nánari lýsing:
Íbúðarhúsið er 100 fm tvílyft bárujárnsklætt timburhús í góðu standi sem skiptist þannig að neðri hæðin samanstendur af forstofu, baðherbergi með sturtu, plássgóðu þvottahúsi, góðu eldhúsi og stofum. Efri hæðin er með fjórum herbergjum með fallegu útsýni.
Veitingahúsið /samkomuhúsið sem er 204 fm og hefur verið nýtt sem hús til samkomu og námskeiðahalds er allt endurnýjað að utan sem innan og skiptist í stóran veitingasal með mikilli lofthæð, bar í því rými. Stórt eldhús með sex eldunarstöðvum, stór eyja og allt mjög vel tækjum búið. Gott loftræstikerfi og öll tæki sem afkastamikil eldhús þurfa.
Á gangi eru snyrtingar og sturtur.
Auðvelt væri að nýta þetta hús í annað eins og t.d. sem gistihús eða íbúðarrými.
Skemma sem er 146 fm er í góðu ástandi og hefur verið nýtt sem lager, þvottahús og fl.ásamt því að búið er að stúka af hluta sem hugsaður væri sem íbúð.
Gróðurskemma ca. 77 fm er þar við hliðina ásamt 49 fm geymslu.
Þessu öllu fylgja svo 5 stk glerkúluhús sem eru í rekstri og gefa mjög góðar leigutekjur. Þvottaaðstaða og sturtur eru til staðar.
Nánari upplýsingar veita: Ólafur Björn Blöndal Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja og skipasali, í síma 6900811, tölvupóstur olafur@gimli.is og Lilja Hrafnberg Löggiltur fasteignasali í síma 8206511, tölvupóstur lilja@gimli.isGimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá
Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur:
gimli@gimli.isGimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- . Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala