Parhús • Höfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarholt og Úlfarsárdalur-113
Deila eign
Deila
238 m2
6 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
149.900.000 kr.
Verð
149.900.000 kr.
Fermetraverð
629.832 kr./m2
Fasteignamat
144.650.000 kr.
Brunabótamat
117.450.000 kr.
Byggt 2008
238 m2
6 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Trausti fasteignasala, Hallgrímur Hólmsteinsson lgfs og Kristján Baldursson lgfs kynna glæsilegt og vel skipulagt sex herbergja parhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr í þessu barn- og fjölskylduvæna hverfi. Hellulögð innkeyrsla, timbur verönd í skjólsælum garði. Gólfhiti er í öllu húsinu, gegnheilt planka parket er á gólfum og Philips Hue ljósakerfi. Harðviður er á sólpalli. Suður svalir á efri hæð, fimm herbergi, þrjú baðherbergi, hjónasvíta og fleira prýða þessa fallegu eign. Aukin lofthæð er á báðum hæðum. Sjón er sögu ríkari, bókið skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni í síma 896-6020 eða á tölvupóstfangið hallgrimur@trausti.is eða hjá Kristjáni Baldurssyni með tölvupósti á kristjan@trausti.is.
Húsið er skráð 238,0 m2 og er bílskúrinn 23,1 m2 samkvæmt HMS.
Nánari lýsing eignar: Komið er inn á flíslagt anddyri með stórum fataskáp og innangengt í bílskúrinn úr því. Til hægri inn af anddyri er rúmgott herbergi, gegnheilt plankaparket á gólfi. Á neðri hæð er flísalagt baðherbergi með sturtu. Stofa, borðstofa og eldhús eru í stóru alrými á neðri hæð og þaðan er útgengt út á stóra harðviðarverönd með skjólveggjum allan hringinn. Eldhúsið er með nýlegri dökkri innréttingu, stórri eyju, rými fyrir tvöfaldan ísskáp og miklu vinnuplássi. Stofan og borðstofa eru með gegnheilu plankaparket á gólfi og stórum gluggum sem gerir rýmið afar bjart og fallegt. Inn af stofu er sjónvarpsstofa með flísum á gólfi. Parketlagður stigi er upp á efri hæðina og eru geymsluskápar undir stiganum. Hjónasvítan er stór og rúmgóð með flísalögðu baðherbergi með sturtu inn af ásamt rúmgóðu og miklu skápaplássi. Gegnheilt plankaparket á gólfum. Barnaherbergin á efri hæðinni eru þrjú og eru öll með gegnheilu plankaparketi á gólfi, öll stór og rúmgóð. Baðherbergi á efri hæð er flísalagt með hornbaðkari. Útgengt er út á stórar svalir af ganginum. Þvottahúsið er á efri hæðinni og er það afar rúmgott en þar hafa núverandi eigendur komið fyrir stórum fataskápum fyrir börnin og eru því engir fataskápar inni í barnaherbergjum. Bílskúrinn er með fjarstýrðri hurðaropnun og er stór og rúmgóð geymsla í enda hans, en engu að síður er gott pláss fyrir bíl. Bílastæðið er hellulagt og með snjóbræðslu og er snjóbræðsla að aðalinngangi. Lóðin er vel gróin fallegum gróðri. Blóma- og trjábeð voru sett upp af skrúðgarðyrkjufræðingi og verður afar blómlegt og fallegt yfir sumartímann.
Hér er á ferðinni afar vel skipulagt og fallegt parhús með 4 barnaherbergjum auk hjónasvítu, þremur baðherbergjum, skjólsælum garði og á góðum stað í þessu fallega hverfi. Allar nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020 eða með tölvupósti á póstfangið hallgrimur@trausti.is eða Kristján Baldursson hdl og löggiltur fasteignasali með tölvupósti á póstfangið kristjan@trausti.is.
Vart hefur orðið við raka í útveggjum og lofti hússins eftir rakamælingu þó enginn sjáanlegur leki hafi verið og eru kaupendur hvattir til að láta skoða húsið af fagmönnum.

Dagsetning
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
Nothæfur samningur
08/09/2020
84.100.000 kr.
88.400.000 kr.
238 m2
371.428 kr.
Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.