DV logo
Fasteignaleitin
Opið hús:21. apríl kl 12:00-12:30
Skráð 17. apríl 2026

Hraunbær 103

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
88.2 m2
3 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
78.500.000 kr.
Fermetraverð
890.023 kr./m2
Fasteignamat
65.200.000 kr.
Brunabótamat
43.150.000 kr.
Mynd af Þórey Ólafsdóttir
Þórey Ólafsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2044299
Landnúmer
111066
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
04
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Austursvalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Á aðalfundi 2024 kom fram að kominn sé tími á að mála húsið að utan og fleira. Á húsfundi í maí 2024 kom fram að það er verið að vinna í því að fá uppfært tilboð í þakviðgerðir. Í framhaldinu verður farið í þakviðgerðir á öðrum hlutum hússins á næstu árum.Sjá nánar aðalfundargerð 29.04.24 og húsfundargerð 08.05.2024. Áaðalfundi 2025 var farið yfir verkefni ársins sem erum m.a. að útbúa hurð á þak og klára þakvinnu. Sjá nánar aðalfundargerð 23.01.2025. Á aðalfundi 2026 var farið yfir að áfram verði haldið með áður samþykktar þak framkvæmdir á árinu. Stjórn var veitt heimild til að ganga að tilboði í viðgerðir á svalagólfi og niðurfalli á sameiginlegum svölum með þeim fyrirvara að húsfélagið eigi fyrir þeim. Stjórn mun afla tilboða í rafhleðslustöðvar og kynna síðar á fundi til ákvörðunar. Sjá nánar aðalfundargerð 04.02.2026. Inneign í sjóðum húsfélags eu rétt tæpar 51 mkr.
LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu bjarta og rúmgóða 2–3ja herbergja endaíbúð á 4. hæð í lyftuhúsi við Hraunbæ 103 í Reykjavík. Húsið er ætlað félagsmönnum í Félagi eldri borgara, 60 ára og eldri. Innangengt er í félagsmiðstöð sem rekin er á vegum velferðarsviðs Reykjavíkurborgar þar sem boðið er upp á fjölbreytt félagsstarf. Þar er meðal annars mötuneyti, setustofa, hárgreiðslustofa og snyrtistofa. Tvær lyftur eru í húsinu og aðgengi gott.

Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, þar á meðal matvöruverslanir, apótek og heilsugæslu. Sundlaug og fallegar gönguleiðir í Elliðaárdal eru í næsta nágrenni.

Birt stærð eignarinnar er 88,2 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands. Íbúðin skiptist í stofu og borðstofu í opnu rými, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu innan íbúðar. Einnig fylgir læstur skápur (geymsluhólf) í sameign á jarðhæð. Eignin er skráð sem 3ja herbergja en búið er að opna rými, stækka stofu og borðstofu sem skapar einstaklega rúmgott og bjart alrými. Í dag er því eitt svefnherbergi í íbúðinni.

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT – Allar frekari upplýsingar veitir Þórey í síma 663 2300 eða á thorey@fastlind.is

Nánari lýsing

Forstofa með fataskáp og fatahengi, parket á gólfi.
Eldhús með nýlegri innréttingu, uppþvottavél og innbyggðum kæliskáp með frysti sem fylgir, parket á gólfi.
Stofa og borðstofa í björtu og rúmgóðu opnu rými með útgengi á austursvalir (voru áður tvö rými), parket á gólfi.
Svefnherbergi með fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf með innréttingu, upphengdu salerni og rúmgóðri sturtu. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla innan íbúðar með hillum, parket á gólfi.

Húsgjöld eignarinnar eru 31.004 kr. á mánuði og innifela meðal annars almennan rekstur húsfélags, hita, rafmagn í sameign, þrif, húseigendatryggingu, framkvæmdasjóð og þjónustukaup.

Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 eða gegnum thorey@fastlind.is
 

Á heimasíðunni minni www.thorey.is má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.

Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
27/10/202243.050.000 kr.67.500.000 kr.88.2 m2765.306 kr.Nei
30/03/202038.800.000 kr.51.500.000 kr.88.2 m2583.900 kr.Nei
18/06/201321.000.000 kr.28.400.000 kr.88.2 m2321.995 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (34)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hringhamar 8 (305)
Opið hús:19. apríl kl 13:45-14:15
Hringhamar8_04.jpg
Hringhamar 8 (305)
221 Hafnarfjörður
68 m2
Fjölbýlishús
312
888 þ.kr./m2
60.400.000 kr.
Skoða eignina Vesturvin 3 - 102
Opið hús:19. apríl kl 14:00-14:30
7-FestirGardurNott.jpg
Vesturvin 3 - 102
101 Reykjavík
66.2 m2
Fjölbýlishús
211
1053 þ.kr./m2
69.700.000 kr.
Skoða eignina Vesturvin 3 - 101
Opið hús:19. apríl kl 14:00-14:30
3-Mynd04.jpg
Vesturvin 3 - 101
101 Reykjavík
66 m2
Fjölbýlishús
211
1056 þ.kr./m2
69.700.000 kr.
Skoða eignina Lyngás 1E
Bílastæði
Opið hús:20. apríl kl 17:00-17:30
Skoða eignina Lyngás 1E
Lyngás 1E
210 Garðabær
102.1 m2
Fjölbýlishús
413
802 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin