Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8611105- dora@husfasteign.is og Hús fasteignasala kynna í einkasölu: Brekkugötu 9 sem er gott og vel skipulagt einbýlishús í Vestmannaeyjum. Húsið er byggt úr steini árið 1957 og er 229,2 m2 þar af er bílskúr 41,6 m2 byggður árið 1962. Skipt var um glugga á efri hæðinni fyrir nokkrum árum og settar nýjar flasningar á þakið í fyrra. Séríbúð á neðri hæð, innangeng af efri hæð en einnig með sérinngangi. Skjólsæll og gróinn garður, frábær staðsetning við íþróttamiðstöðina.
BÓKIÐ SKOÐUN á netfangið dora@husfasteign.is eða í síma 8611105
Nánari lýsing:
Efri hæð:
Forstofa: Flísar á gólfi, fatahengi
Stofa: Parket á gólfi, opið í borðstofu
Eldhús: Parket á gólfi, snyrtileg eldri innrétting, opið í borðstofu
Baðherbergi: Flísar í hólf og gólf, sturtuklefi, wc, vaskur, innrétting, opnanlegur gluggi
Herbergi: Parket á gólfi
Herbergi: Parket á gólfi
Herbergi: Parket á gólfi
Geymsla: Dúkur á gólfi, hillur, gengið niður á neðri hæð
Neðri hæð:
Stofa: Steypt gólf
Eldhús: Steypt gólf, nett snyrtileg innrétting
Herbergi: Parket á gólfi
Herbergi: Parket á gólfi
Baðherbergi: Flísar á gólfi og votrýmum, sturta, upphengt wc, opnanlegur gluggi
þvottahús: Steypt gólf
Bílskúr: Steypt gólf, kalt vatn, rafmagn
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.