Fasteignaleitin
Opið hús:08. sept. kl 18:00-18:30
Skráð 5. sept. 2025
Deila eign
Deila

Lyngás 1A

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
114.4 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
93.900.000 kr.
Fermetraverð
820.804 kr./m2
Fasteignamat
84.600.000 kr.
Brunabótamat
65.660.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2016
Þvottahús
Lyfta
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2312736
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
7
Vatnslagnir
Frá því að húsið var byggt
Raflagnir
Frá því að húsið var byggt
Frárennslislagnir
Frá því að húsið var byggt
Gluggar / Gler
Frá því að húsið var byggt
Þak
Frá því að húsið var byggt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd og svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Nýtt á skrá! Lyngás 1A Garðabæ - Bókið skoðun.

Fjögurra herbergja íbúð með svölum, viðarverönd og bílastæði í bílakjallara!


Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynna til sölu afar fallega 114,4 fermetra 4ra herbergja íbúð á 1. hæð með rúmgóðum afgirtri viðarverönd og svölum við Lyngás 1A í Garðabæ. Útgengi úr stofu á svalir til vesturs með afar útsýni til fjalla. Útgengi úr einu svefnherbergi á skjólgóða viðarverönd sem snýr inn í bakgarð hússins. Gott þvottaherbergi er staðsett innan íbúðar. Geymsla er 8,8 fermetrar á geymslugangi og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Sérstæði í lokuðum bílakjallara fylgir íbúð með rafhleðslustöð.

Húsið er byggt árið 2016, viðhaldslítið með lyftu og fallega frágenginni lóð. Hellulagðrar stéttir fyrir framan hús með snjóbræðslu. Malbikuð bílastæði á lóð. Tyrfðar flatir, hellulagðar stéttar og leikteiki á baklóð. Búið er að setja upp nokkra rafhleðslustaura við bílastæði á lóð. 

Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í góðu fjölskylduhverfi við Ásanna í Garðabæ. Stutt í alla verslun og þjónustu. Íþróttasvæði Stjörnunnar í næsta nágrenni og frábærar hjóla- og gönguleiðir við sjóinn og gegnum hraunið sem tengist friðlandinu í Gálgahrauni. Stutt í leikskóla (Ásar) og grunnskóla og framhaldsskóla. Sundlaug í næsta nágrenni.

Nánari lýsing:

Forstofa: Með harðparketi á gólfi og skápum.
Stofa: Með harðparketi á gólfi og gluggum til vesturs. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Stofa er opin að hluta við eldhús og með útgengi á svalir.
Svalir: Snúa til vesturs og með útsýni til fjalla.
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og rúmgóðri eldhúsinnréttingu með góðu vinnuplássi. Tvöfaldur LG kæliskápur með vatns/klakavél, bakaraofn, spansuðuhelluborð með 6 hellum, vifta og tengi fyrir uppþvottavél. 
Þvottaherbergi: Er rúmgott og staðsett inn af eldhúsi. Flísar á gólfi, vinnuborð og vaskur. Tengi fyrir þvottavél/þurrkara, skápar, útloftun og þvottasnúrur.
Hjónaherbergi: Með harðparketi, góðum skápum og glugga til vesturs.
Svefnherbergi II: Með harðparketi, skápum og glugga til austurs.
Svefnherbergi III: Með harðparketi og glugga til austurs. Útgengi á verönd.
Verönd: Er rúmgóð og nýlega byggð. Afgirt viðarverönd sem snýr inn í bakgarð hússins.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtutækjum, góð innrétting við vask með speglaskáp fyrir ofan. Handklæðaofn, innb./upph. salerni og útloftun. 

Geymsla: Er 8,8 fermetrar að stærð og staðsett á geymslugangi.
Hjóla og vagnageymsla: Er staðsett í sameign hússins.
Bílastæði í bílakjallara: Merkt 107. Vel staðsett með rafhleðslustöð.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
03/05/201746.500.000 kr.49.000.000 kr.114.4 m2428.321 kr.
07/12/20153.880.000 kr.39.900.000 kr.114.4 m2348.776 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Byggt 2015
Fasteignanúmer
2312736
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B4
Númer eignar
0
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
5.960.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Asparás 3
Skoða eignina Asparás 3
Asparás 3
210 Garðabær
129.1 m2
Fjölbýlishús
514
735 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 2-4 íb115
Bílastæði
Opið hús:07. sept. kl 13:00-14:00
Vetrarbraut 2-4 íb115
210 Garðabær
93 m2
Fjölbýlishús
413
967 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Grímsgata 6
Opið hús:07. sept. kl 12:00-12:30
Skoða eignina Grímsgata 6
Grímsgata 6
210 Garðabær
111.4 m2
Fjölbýlishús
413
843 þ.kr./m2
93.900.000 kr.
Skoða eignina Eskiás 6 íb310
Skoða eignina Eskiás 6 íb310
Eskiás 6 íb310
210 Garðabær
102.5 m2
Fjölbýlishús
54
926 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin