DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 5. ágúst 2026

Bláskógar 6 - 6B og 6C

EinbýlishúsSuðurland/Hveragerði-810
240.6 m2
8 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
160.000.000 kr.
Fermetraverð
665.004 kr./m2
Fasteignamat
98.150.000 kr.
Brunabótamat
124.860.000 kr.
Mynd af Gunnar Biering Agnarsson
Gunnar Biering Agnarsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1945
Garður
Pallur
Heitur pottur
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2209864
Landnúmer
171029
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Holsteinn
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjaðar að hluta
Raflagnir
Ekki vitað um nein vandamál
Frárennslislagnir
Ekki vitað um nein vandamál
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta
Þak
Endurnýjað að hluta ca 2000
Lóðarréttindi
Leigulóð
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Valborg fasteignasala kynnir í einkasölu Seyðtún (Bláskóga 6) auk lóðanna Bláskógar 6B og 6C, 810 Hveragerði. 

Sum hús eru byggð til að búa í, önnur verða hluti af sögu bæjarins. Bláskógar 6 tilheyrir hvoru tveggja. Húsið var hannað og reist árið 1945 af listmálaranum Kristni Péturssyni og stendur enn í dag á fallegri, gróinni lóð þar sem kyrrð, saga og náttúrufegurð fara saman. Hér sameinast hlýlegt heimili, glæsileg útiaðstaða og einstakur karakter sem verður ekki endurskapaður. 

Um er að ræða Bláskóga 6 sem er tvílyft einbýlishús, útleigueiningu, gróðurhús, garðskúr, skráð samtals 240,6 m² hjá Þjóðskrá Íslands en lóð eignarinnar er skráð 1.240,8 m².
Skipting eignanna er sem hér segir:
Eining 01-0101 er tvílyft einbýlishús, skráð 144,8 m².
Eignin er: Á jarðhæðinni er forstofa, alrými sem í er eldhús - stofa - borðstofa, baðherbergi, þvottahús/geymsla. Á efri hæð eru þrjú rúmgóð svefnherbergi. Byggt 1945.
Jarðhæðin er að mestu leiti flísalögð, fyrir utan þvottahús. Hátt er til lofts í alrými (eldhús/stofa/borðstofa) og þakluggar eru yfir því rými. Arinn er í stofu. Rúmgott baðherbergi og sér rými sem í er sturta. Þvottahús er mjög rúmgott og nýtist einnig sem góð geymsla. Stigi upp á efri hæð er teppalagður, sem og svefnherbergisgangur efri hæðar. Opið þaðan niður í alrými hússins. Þrjú svefnherbergi á efri hæð, öll með parketi á gólfum.  
Eining 02-0101 er íbúð, skráð 63,0 m². Var áður bílskúr, er í dag þriggja herbergja íbúð auk geymslu. Eignin er: Íbúðin er forstofa, tvö svefnherbergi, alrými sem í er eldhú - stofa - borðstofa, baðherbergi, risloft. Auk þess er geymsla aðgengileg um annan inngang, ótengdan íbúðinni. Byggð 1990. 
Eining 03-0101 er baðhús, skráð 19,3 m². Var nýtt sem sér útleigueining og gæti orðið það aftur. Þar er fullbúið eldhús og baðherbergi. Byggt 2017.
Eining 04-0101 er gróðurhús, skráð 13,5 m². Vandað upphitað Serralux gróðurhús frá Filclair í Belgíum, með ræktunarhillum en einnig er hægt að rækta í gólfi. Umboðsaðili er Lágafell. Byggt 2004.
Auk þess eru tvö óskráð heilsárshús á lóðinni, samtengd með yfirbyggðu þaki. Með þeim er fermetratala eignanna orðin um 270 m².
Stór sólpallur með heitum potti er haganlega fyrirkomið á skjólsælum stað.
Bílaplan er æði stórt, snjóbræðsla til staðar.
Lóðin er skráð 1.240.4 m² og er á henni mikill gróður. Sjá uppl um heildarlóðastærðir hér fyrir neðan.

Fyrir nokkrum árum var lóðin minnkuð úr 2.338,9 m² og stofnaðar út úr henni tvær byggingalóðir, sem fylgja með. hægt er að byggja á þeim, selja þær út úr pakkanum eða nýta þær til að hafa stærri lóð til suðurs. Skráning þeirra er sem hér segir:
Bláskógar 6B 
er skráð 327,9 m² byggingarlóð en gert er ráð fyrir einnar hæðar einbýlishúsi á lóðinni. Nýtingarhlutfall er að 0,3.
Bláskógar 6C er skráð 806,6 m² byggingarlóð en gert er ráð fyrir einnar til tveggja hæða einbýlishúsi á lóðinni. Nýtingarhlutfall er að 0,3.
Heildarstæð lóðanna er því 2.338,9 m².

Bláskógar 6 – einstök fjölskyldueign með sögu, sál og fallegri lóð
Það er sjaldgæft að eign bjóði upp á jafnmikla sögu og persónuleika og Bláskógar 6 gera. Húsið var hannað og reist árið 1945 af listmálaranum Kristni Péturssyni sem valdi Hveragerði sem heimili sitt og vinnustað. Þar skapaði hann verk sín í sérstakri vinnustofu sem var hluti af húsinu og eignin hefur síðan verið hluti af þeirri einstöku sögu sem mótaði Hveragerði sem listamanna- og garðyrkjubæ.
Á rúmgóðri og gróinni lóð ríkir einstök kyrrð og skjól. Þar sameinast fallegur garður, gróðurhús og góðar aukabyggingar í umhverfi sem býður upp á fjölbreytta möguleika til útleigu, útivistar, ræktunar og notalegrar samveru.
Húsið hefur tekið breytingum í takt við tímann en heldur jafnframt í þann karakter og hlýju sem einkenna vandaðar eignir frá fyrstu uppbyggingarárum Hveragerðis. Hér gefst einstakt tækifæri til að eignast fallegt heimili þar sem saga, náttúra og nútímaleg lífsgæði mætast á einstaklega eftirsóttum stað.
Bláskógar 6 er ekki aðeins hús – heldur heimili með sögu sem heldur áfram með nýjum eigendum. Sjón er sögu ríkari.


Eignin virðist hafa fengið gott viðhald í gegnum árin en um síðustu aldamót voru bæði íbúðarhúsin mikið endurnýjuð. Viðhalda á gluggum (gler og timbur eftir atvikum), rafmagns- og vatnslagnir endurnýjaðar að hluta, gólfefni, ytra byrði húsa sem og þökum.

Aðrar eignir sem við seljum má sjá hér.

Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is


Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
16/02/202157.232.000 kr.75.000.000 kr.240.6 m2311.720 kr.Nei
11/04/201323.150.000 kr.34.500.000 kr.156.7 m2220.165 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignanúmer
2511989
Lóðarmat
14.000.000 kr.
Fasteignamat samtals
14.000.000 kr.
Byggt 1990
63 m2
Fasteignanúmer
2209864
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
33.700.000 kr.
Byggt 2017
19.3 m2
Fasteignanúmer
2209864
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
3.180.000 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
3.180.000 kr.
Brunabótamat
10.200.000 kr.
Byggt 2004
13.5 m2
Fasteignanúmer
2209864
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
1.330.000 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
1.330.000 kr.
Brunabótamat
4.460.000 kr.
Fasteignanúmer
2511988
Lóðarmat
7.750.000 kr.
Fasteignamat samtals
7.750.000 kr.

Myndir (46)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Norðurslóð 6
3D Sýn
Bílskúr
Á einni hæð
Opið hús:07. ágúst kl 18:00-18:30
Skoða eignina Norðurslóð 6
Norðurslóð 6
800 Selfoss
263.6 m2
Einbýlishús
524
512 þ.kr./m2
134.900.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Dehesa de Campoamor
Bílskúr
SPÁNAREIGNIR - Dehesa de Campoamor
Spánn - Costa Blanca
247 m2
Einbýlishús
433
863 þ.kr./m2
213.100.000 kr.
Skoða eignina Fjóluklettur 22
Eirhöfði 7 (6).jpg
Skoða eignina Fjóluklettur 22
Fjóluklettur 22
310 Borgarnes
244.3 m2
Einbýlishús
523
96 þ.kr./m2
23.500.000 kr.
Skoða eignina Tröllahraun 8
Á einni hæð
Heitur pottur
0S6A1270.jpg
Skoða eignina Tröllahraun 8
Tröllahraun 8
805 Selfoss
227.7 m2
Sumarhús
423
Fasteignamat 157.400.000 kr.
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin