Domusnova fasteignasala Borgarnesi er með til sölu 167,7 fm einbýlishús á tveimur hæðum, með bílskúr, með stórfenglegu útsýni á Drangsnesi við Steingrímsfjörð.
Flott tækifæri fyrir réttan aðila.
Aðalbraut 2, Kaldrananeshreppi, húsið er nefnt Hamravík, er steypt að hluta og timburgrind að hluta. Er um að ræða einbýlishús á tveimur hæðum, elsti hluti hússins er 75,5 fm. frá árinu 1925, 44,0 fm. bílskúr byggður við árið 1960 og 48,2, fm. geymsla árið 1970, samtals er eignin því með birta stærð upp á 167,7 fm.
Aðalhæð skiptist í forstofu og opið rými, þaðan sem innangengt er í bílskúr og stigi er upp á efri hæð hússins. Rúmgott baðherbergi er til staðar og þvottahús. Efri hæðin skiptist í tvö rými, stofu og svefnherbergi. Loft og veggir klæddir með panil á efri hæðinni, parket á gólfi. Stigi milli hæða er vinnustigi úr timbri.** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / hrannar@domusnova.isFyrsta hæð:
Forstofa og opið rými, flísar á gólfi.
Eldhús er með U-laga innréttingu með efri skápum og flísum á gólfi.
Baðherbergi og þvottahús er óklárað rými, rúmgott baðherbergi og þvottahúsi þaðan sem er útgengt út í garð.
Bílskúr og geymslur:
Gengið er inn í bílskúr að framanverðu, gönguhurð og bílskúrshurð. Hurð er á milli íbúðarrýmis og bílskúrs.
Innst inn í bílskúr er gengið inn í geymslu sem er sambyggð húsinu og þaðan inn í aðra geymslu þaðan sem er útgengt. Steypt gólf eru á öllum þessum rýmum.
* Rafmagn er í endurnýjunarferli, sumt búið en mikið óklárt.
* Þak allt verið endurnýjað í heild sinni og bætt enn frekar við einangrun.
* Skipt um flesta glugga.
* Klæðning að utan hefur verið endurnýjuð að hluta.
* Byrjað var að skipta um vatnslagnir, er því ekki lokið.
Helsta sem liggur fyrir:
Húsið þarfnast endurnýjunar og töluverða framkvæmda. Ekki hefur verið búið í húsinu síðastliðið ár né haldið áfram með þær framkvæmdir sem byrjað var á. Bent er á að margt sem búið er að gera hefur fyrri eigandi gert sjálfur og skal kaupandi skoða húsið með það í huga út frá skoðunarskyldu kaupenda skv. fasteignakaupalögum.
Framkvæmdir er mislangt á veg komnar og leggja þarf töluverða vinnu í standsetja húsið. Á staðnum er eitthvað til af efni sem keypt hafði verið fyrir þær framkvæmdir sem stóðu yfir og fylgir það með sem sést á myndum og sýnt við skoðun. Einnig eru þau verkfæri sem sjást á myndum og við skoðun hluti af kaupum á húsinu. Því selst húsið eins og það stendur og er kynnt.
Kaupanda er bent sérstaklega á að seljandi hefur ekki búið í húsinu né þekkir til þess nema á takmarkaðann hátt. Húsið er hluti af dánarbúi.
Nánari upplýsingar fást hjá:
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali
Sími: 899 0720
Netfang: hrannar@domusnova.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.