Fasteignaleitin
Skráð 17. júlí 2025
Deila eign
Deila

Hafnarstræti 23 risíbúð

FjölbýlishúsNorðurland/Akureyri-600
99.5 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
51.500.000 kr.
Fermetraverð
517.588 kr./m2
Fasteignamat
39.950.000 kr.
Brunabótamat
41.550.000 kr.
Mynd af Sigurður H. Þrastarson
Sigurður H. Þrastarson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1903
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2146879
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
St+timbur
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
3
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Nýjar ofnalagnir
Raflagnir
Gamlar
Frárennslislagnir
Gamlar
Gluggar / Gler
Gamlir
Þak
Viðgert 2021, skipt um það sem þurfti að skipta
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Timbur svalir til suðurs
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Viðgerðir á handriðum á stigum báðum megin við hús
Leggja göngustíg (möl eða helluleggja)
Baðherbergi er orðið nokkuð lúið en búið er að leggja ofnalagnir til að undirbúa að setja hita í gólf
Endurnýja þarf teppi í stigagangi og mála handrið og sameign.
Hafnarstræti 23 - Mikið endurnýjuð 4ra herbergja risíbúð í fjölbýlishúsi í Innbænum á Akureyri - stærð 99,5 m²

Eignin skiptist í forstofu/hol, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Þrjár geymslur eru undir súð og svo er sér geymsla á jarðhæð.

Gengið er inn um sameiginlegan inngang á vesturhlið hússins og upp teppalagðan timbur stiga. Af stigapalli er annarsvegar hurð inn í forstofu/hol og hinsvegar svefnherbergi.
Forstofa/hol er með timbur gólffjölum og þar er lúga upp á loft. 
Eldhús er með harðparketi á gólfi og ljósri sprautulakkaðri innréttingu og góðum borðkrók. Lítil geymsla er til hliðar úr eldhúsi undir súð.
Stofa er afar björt með timbur gólffjölum og tveimur gluggum til austurs.
Svefnherbergi eru þrjú:
Herbergi 1
er með tveimur stórum gluggum og góðum fataskáp. á gólfi eru timbufjalir.
Herbergi 2 er með fataskáp og timburfjölum á gólfi.
Herbergi 3 er með fataskáp, harðparketi á gólfi en úr því er hurð út á stigapall sem og útgengt á rúmgóðar suðursvalir (16,5 m²).
Baðherbergi er með flísaplötum á gólfi, hvítri innréttingu, upphengdu wc, stóru baðkari, tengi fyrir þvottavél og þurrkara og opnanlegum glugga. Lítil geymsla er til hliðar úr baðherbergi, undir súð.

Sér geymsla er á jarðhæðinni, skráð 10,3 m² að stærð, þar er steypt og lakkað gólf og gluggi. Nýlega voru settar upp hillueiningar. 

Eignin hefur verið mikið endurnýjuð undanfarin ár
Innanhús:

- Timburgólf verið pússuð og lökkuð á smekklegan máta.
- Skipt um allar ofnalagnir og ofnaloka.
- Nýtt harðparket lagt á tvö rými. 
- Allir veggir lagaðir, þ.e pússaðir, spartlaðir og málaðir. 
- Eldhúsinnrétting tekin í gegn, ný borðplata og höldur. 
- Nýir fataskápar
- Skipt hefur verið um gólflista í allri íbúðinni.

Utanhús:
- Þak hefur verið endurnýjað.
- Í vinnslu er að fara yfir klæðningu á húsi, viðarklæðningu, steypu og bárujárn og við gera sem og mála að utan, glugga og klæðningu.
Viðgerð þessi er samþykkt af húsfélagi og greiðir seljandi fyrir. 
- Lóð hefur að miklu leyti verið endurnýjuð, sáð fyrir nýju grasi og mikil hreinsunarvinna hefur farið fram. 
- Skipt um handrið á svölum og svalargólf málað. 

Annað:
- Sláttuvél og sláttuorf í eigu húsfélags
- Íbúðin á fjórðungs hlut í þvottahúsi á jarðhæðinni á móti íbúðum á miðhæðinni og íbúð í suðurenda á jarðhæðinni
- Eignarhlutur í íbúðar í húseigninni er 25%
- Eignarhlutur hverrar íbúðar í lóð er sá sami og eignarhlutur í húsi.
- Eignin er í einkasölu 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
03/05/202440.550.000 kr.34.500.000 kr.99.5 m2346.733 kr.
04/05/201718.050.000 kr.16.950.000 kr.99.5 m2170.351 kr.
09/01/200810.750.000 kr.11.800.000 kr.99.5 m2118.592 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Norðurgata 45
Skoða eignina Norðurgata 45
Norðurgata 45
600 Akureyri
107.9 m2
Fjölbýlishús
41
490 þ.kr./m2
52.900.000 kr.
Skoða eignina Þórunnarstræti 106C
Þórunnarstræti 106C
600 Akureyri
85.3 m2
Fjölbýlishús
122
632 þ.kr./m2
53.900.000 kr.
Skoða eignina Tjarnarlundur 2j
Skoða eignina Tjarnarlundur 2j
Tjarnarlundur 2j
600 Akureyri
99.6 m2
Fjölbýlishús
413
511 þ.kr./m2
50.900.000 kr.
Skoða eignina Oddagata 3 efri hæð
Oddagata 3 efri hæð
600 Akureyri
88.9 m2
Fjölbýlishús
312
584 þ.kr./m2
51.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin