Til leigu um 170 - 530 m² verslunarhúsnæði í nýlegri byggingu Garðheima við Álfabakka 6. Laust frá september nk.
Nánari lýsing: Húsnæðið er að mestu opið verslunarrými með verslunarhurð og góðu aðgengi. Næg bílastæði eru til staðar. Aðgengi er að snyrtingum og kaffistofu í sameign. Þrjár stærðir standa til boða, þ.e. um 170 m², 360 m² eða um 530 m² rými auk hlutdeildar í sameign. Einnig er möguleiki á að leigja skrifstofuaðstöðu á 2. hæð hússins. VSK leggst við leigufjárhæðina.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Már Karlsson, löggiltur fasteignasali s. 897 7086 hmk@jofur.is