- Smelltu hér til að skoða myndband um eignina -Skemmtileg tveggja herb. íbúð miðsvæðis í bænum, tilbúin til útleigu eða eigin notkunar!
Smekklega innréttuð 51,7 fm íbúð í fjölbýlishúsi við Tryggvabraut á Akureyri – afhending við kaupsamning með öllu innbúi!
Íbúðin er í húsi þar sem nokkrar íbúðir eru í leigu og gott fjárfestingartækifæri, allar bókanir fylgja með – sem eru ekki af verri endanum!
Þetta er kjörið tækifæri fyrir fyrirtæki, starfsmannafélög eða einstaklinga sem vilja frábæra fjárfestingu eða eiga notalegt orlofshúsnæði.
Íbúðin skiptist í:
Anddyri með fataskáp og harðparketi
Baðherbergi með flísum, sturtu með glervegg, upphengdu salerni og vandaðri innréttingu.
Rúmgóð stofa og borðstofa (með svefnsófa, svefnrými fyrir fjóra í íbúð) í opnu rými með eldhúsi sem er fullbúið tækjum – ísskápur, ofn, uppþvottavél, helluborð og háfur
Svefnherbergi stúkað af með rennihurðum.
Aðstaðan í sameign:
Stórar verandir, heitir pottar og notalegt grillsvæði
Sér upphituð skíðageymsla/skápur fyrir 4 skíði og skíðaskó
Íbúðin er með starfsleyfi og tilbúin til notkunar strax við undirritun kaupsamnings. Öll húsgögn og húsbúnaður fylgir – þú þarft aðeins að mæta með töskuna!
Ef aðilar hyggjast ekki nýta íbúðina í virðisaukaskattskylda starfsemi þarf að greiða upp VSK kvöð.
Möguleiki er að eignast tvær samliggjandi eignir í húsinu og eru þær jafnstórar sem eykur möguleika til tekjuöflunar.