DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 24. maí 2025

SPÁNAREIGNIR - Dona Pepa

FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
191 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
47.800.000 kr.
Fermetraverð
250.262 kr./m2
Garður
Fasteignanúmer
101050126
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
90 fm þaksvalir
Upphitun
Kæling / Hiti
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEG PENTHOUSE ÍBÚÐ TIL SUÐURS MEÐ EINSTÖKU ÚTSÝNI* *90 FM ÞAKSVALIR, MEÐ LYFTUAÐGENGI* *STÓRT SAMEIGINLEGT ÚTISVÆÐI OG SUNDLAUG* *VERSLANIR OG VEITINGASTAÐIR Í GÖNGUFÆRI* *LYFTA OG STÆÐI*

Allar upplýsingar gefa:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, sími 0034 615 112 869, berta@spanareignir.is
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. sími 893 2495, adalheidur@spanareignir.is 

Glæsilegt og vönduð penthouse íbúð með stórum þaksvölum og frábæru útsýni. Húsið var byggt 2019 en ástand eignarinnar er frábært og íbúðin er sambærileg nýrri eign. Íbúðin er 101 fm og telur 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi. Þaksvalirnar eru 90 fm og þar er einnig útieldhús, geymslur og þvottahús. Eldhús opið við stofu. Útgengi út á suðursvalir bæði frá stofu og svefnherbergi. Mikið skápapláss, geymslur og þvottahús. Lyftuhúsnæði þar sem lyftan gengur alla leið upp á þaksvalirnar. Húsið er nýlegt og í góðu ástandi á lokaðri lóð. Sameiginlegi garðurinn er mjög rúmgóður og sundlaugin mjög stór. 


Nánari lýsing:
Frá snyrtilegri sameign er gengið inn í forstofu með góðu skápaplássi. Þaðan er gengið inn í opið rými þar sem eldhús er opið við stofu, og gengið út á svalir frá stofu. Svefnherbergin eru þrjú, öll með góðu skápaplássi. Eitt svefnherbergið er með útgengi út á svalir og sér baðherbergi með tvöföldum vaski og sturtu. Hitt baðherbergið er einnig með sturtu. Gengið er upp á þaksvalir frá neðri svölum, en einnig er hægt að taka lyftuna upp og er því sér inngangur á þaksvalir frá sameign. Þaksvalirnar eru 90 fm, einstaklega rúmgóðar og með fallegu útsýni. Þar er einnig útieldhús, útisturta, geymslurými og þvottahús.

Sameiginlegur lokaður sundlaugagarður, mjög rúmgóður og sundlaugin er með þeim stærri sem tíðkast á svæðinu. 

Húsið er fullbúið vönduðum húsgögnum og húsbúnaði ásamt útihúsgögnum og fylgir allt með.
Fullbúið eldhús með tækjum.
Skápar í öllum svefnherbergjum og forstofu.
Fullfrágengið innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun. 
Hiti í gólfum á baðherbergjum.
Inni og útilýsing.
Stæði og geymsla.

Vandaður og fallegur, vel hirtur lokaður sundlaugargarður með góðri sameiginlegri sólbaðsaðstöðu.

Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni, t.d. La Marquesa og La Finca. Einnig eru fleiri góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin, Vistabella og Las Colinas.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Guardamar og ca. 20 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Um 30-40 mín. akstursleið frá flugvellinum í Alicante.
Göngufæri við heilsugæslustöð, matvöruverslanir, góða veitingastaði og miðbæ Ciudad Quesada.

Hér er um að ræða mjög góða eign í topp standi á frábæru verði á hinu vinsæla Dona Pepa svæði í Quesada/Rojales.
Einstakt tækifæri fyrir fólk sem kann og vill njóta lífsins í fallegu umhverfi.

Verð aðeins 330.000 evrur  + kostn. (ISK 47.800.000 + kostn. miðað við gengi 1Evra=145ISK)
 
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.
Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar http://www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: þaksvalir, sameiginlegur sundlaugargarður, air con, húsgögn, stæði, suður, lyfta
Svæði: Costa Blanca, Dona Pepa, Ciudad Quesada
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (28)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Holtsvegur 10
Skoða eignina Holtsvegur 10
Holtsvegur 10
210 Garðabær
100.7 m2
Fjölbýlishús
312
873 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Skoða eignina Berjarimi 26
Opið hús:23. mars kl 18:15-18:45
Skoða eignina Berjarimi 26
Berjarimi 26
112 Reykjavík
83.9 m2
Fjölbýlishús
312
805 þ.kr./m2
67.500.000 kr.
Skoða eignina Kuggavogur 11
Opið hús:24. mars kl 18:00-18:30
Skoða eignina Kuggavogur 11
Kuggavogur 11
104 Reykjavík
75.4 m2
Fjölbýlishús
211
874 þ.kr./m2
65.900.000 kr.
Skoða eignina Kuggavogur 19
Opið hús:24. mars kl 17:30-18:00
Skoða eignina Kuggavogur 19
Kuggavogur 19
104 Reykjavík
61.4 m2
Fjölbýlishús
211
976 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin