Betri Stofan fasteignasala Borgartúni 30 og Jason Kristinn kynnir:
Óðinsstígur 6, 805 Selfoss. Nýlegt heilsárshús, 103 fm á einni hæð með steyptri plötu og gólfhita. Eignarlóð 9001 fm í landi Ásgarðs Grímsnesi.
Ýtið hér fyrir staðsetninguSkipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, þrjú svefnherbergi, gangur og baðherbergi.
Nánari lýsing:
Anddyri með tvöföldum fataskáp.
Gangur liggur innan við anddyri að öðrum rýmum eignarinnar. Lúga er upp á loft á gangi.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, parket á gólfi, upptekið loft, innbyggð lýsing, útgengt er út á timburverönd til suð-vesturs frá alrými.
Eldhús sérsmíðuð innrétting, spanhelluborð, innbyggð uppþvottavél og ísskápur/frystir fylgir eigninni.
Svefnherbergin eru þrjú (eitt þeirra er skráð skrifstofa á teikningu). Tvö stærri herbergin eru með fataskáp.
Baðherbergi, sturta, vegghengt salerni, vaskinnrétting, speglaskápur, Sturtuveggir eru flísalagðir, gluggi, útgengt er úr baðherbergi út á timburverönd.
Gólfefni: vinyl parket á alrými, gangi, svefnherbergjum. Flísar á anddyri og baðherbergi. Gólfhiti er í allri eigninni. Húsið afhendist með góflhitakerfi sem blæs heitu lofti, lofhitakerfi er lagt í gólfplötu. Gólfhitakerfi er tengt og fullfrágengið með stýringum.
Innréttingar eru sérsmíðaðar í Finnlandi frá Belkod ehf. Innbyggð lýsing er í öllum rýmum. Möguleiki er á að kaupa hluta af innbúi með eigninni.
Möguleiki er að fá hluta af innbúi með í kaupum á eigninni.
Húsið er timburhús byggt úr forsniðnum timbureiningum á einni hæð á steyptum sökkli og steyptri plötu. Veggir hússins eru klæddir að utan með liggjandi timburklæðningu. Bárujárn á þaki. Gluggar eru ál/tré gluggar með þreföldu gleri, gráir að lit.
Lóð er frágenginn, möl í bílastæði, pláss fyrir 2 bifreiðar. Timburverönd u.þ.b. 60 m² er aftan við húsið til suðurs og vesturs. Lóðin er eignarlóð skráð 9001,0 m².
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS. Stærð: Sumarbústaður 106,7 m². Byggingarár: 2023. Byggingarefni: Timbur
Stutt er í veiði, sundlaug, 4 golfvelli, Öndverðarness og Kiðjaberg sem eru 18 holur, Selfoss og Hveragerði, íþróttavöll og fallegar gönguleiðir.
Allar nánari upplýsingar veitir: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is - löggiltur fasteignasali.