DV logo
Fasteignaleitin
Opið hús:10. okt. kl 13:00-14:00
Skráð 2. okt. 2026

Selvogsbraut 47B

Nýbygging • FjölbýlishúsSuðurland/Þorlákshöfn-815
91 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
63.500.000 kr.
Fermetraverð
697.802 kr./m2
Fasteignamat
54.600.000 kr.
Byggt 2026
Jarðhæð af 2
Garður
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
2534129
Landnúmer
235910
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Nýjar.
Raflagnir
Nýjar.
Frárennslislagnir
Nýjar.
Gluggar / Gler
Nýir.
Þak
Nýtt.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
23,5 fm. suðurverönd (106).
Lóð
14,42
Upphitun
Hitaveita / Ný.
Inngangur
Sérinngangur
Helgafell fasteignasala og Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu:

Nýjar og vandaðar íbúðir að Selvogsbraut 47, 815 Þorlákshöfn. Húsið er tveggja hæða fjölbýlishús með sex íbúðum. Um er að ræða 3ja – 4ra herbergja íbúðir. Rúmgóðar svalir eða verandir fylgir öllum íbúðum. Allar íbúðir hafa sérinngang. Íbúðum er skilað fullbúnum með vönduðum innréttingum frá HTH, gólfefnum, hreinlætistækjum og heimilistækjum og m.a. innbyggðum kæliskáp / frysti og uppþvottavél. Á jarðhæð er tækni- og inntaksrými, sameiginleg geymsla ásamt sorpgeymslu í sérstæðu húsi á lóð.  Á lóðinni eru 13 bílastæði, þar af eitt fyrir fatlaða. Eignirnar verða afhentar í október 2026. 

Selvogsbraut 47 stendur á einstökum stað í friðsælu og nýlegu hverfi í Þorlákshöfn nálægt nýjum leikskóla og með góðu aðgengi að göngustígum til íþrótta og útivistar.

Nánar um eignina: Eignin er íbúð 102 á fyrstu hæð, 3ja herbergja. Birt stærð séreignar er 91 fm. Eigninni fylgir 23,5fm. timburpallur á verönd - merkt 106.  Íbúðin skiptist í anddyri, í alrými er eldhús og stofa / borðstofa, 2 svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Útgengi er úr stofu út á suður verönd.

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ SÆKJA SÖLUYFIRLIT STRAX
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ SÆKJA SKILALÝSINGU


Nánari skilalýsing:
Frágangur utanhúss:

Útveggir og klæðning utanhúss: Húsið er staðsteypt og útveggir eru einangraðir að utan og klæddir með láréttri báruálklæðningu að hluta. Við innganga, á svölum og veröndum er viðarklæðning. Í litavali utanhúss er gert ráð fyrir veggjum í ljósum lit og þaki, gluggum, hurðum og áfellum í gráum tón. 
Gluggar og handrið: Gluggar og hurðir eru ál-tré, glerjuð með tvöföldu einangrunargleri (K-gleri).  Handrið á svalagangi eru úr galvaniseruðu stáli í gráum lit. Á svölum íbúða eru glerhandrið með burðarkerfi úr álprófílum sem veita möguleika á uppsetningu svalalokana ofan á svalahandrið svala á 2. hæð og gólfsíðum lokunum á veröndum 1. hæðar í sama formi, stíl og útliti.
Sameign, geymslur og sorp: Sameiginleg geymsla fyrir hjól og vagna er í sérstæðu húsi á lóð og er sambyggð sorpgeymslu. Á jarðhæð íbúðarhússins er tækni- og inntaksrými.
Lóðafrágangur: Lóðin skilast fullfrágengin, með hellulögn, grófjöfnuðum og þökulögðum svæðum og gróðri þar sem við á. Á lóðinni eru 13 bílastæði, þar af eitt fyrir fatlaða. Gert er ráð fyrir hleðslu rafbíla með möguleika á tengibúnaði við sex bílastæði, þ.e. eitt fyrir hverja íbúð, tengt við rafmagnsmæli hverrar íbúðar. Hleðslustöðvar fylgja ekki. 
 
Frágangur innanhúss:
Veggir, loft og gólfefni:
 Steyptir veggir eru spartlaðir, grunnaðir og málaðir. Léttir innveggir eru gifsklæddir, spartlaðir og málaðir. Veggir og loft íbúða eru máluð í ljósdröppuðuum lit. Loft eru ýmist sandspörtluð á steyptaloftaplötu og máluð eða niðurtekin gifsloft, spörtluð og máluð. Veggir og loft í votrýmum eru máluð með hvítri rakaþolinni málningu. Í baðherbergjum eru veggir í sturtu flísalagðir og aðrir veggir málaðir. Gólf í baðherbergjum og þvottahúsum eru flísalögð.
Innréttingar, heimilistæki og hreinlætistæki: Allar innréttingar í eldhúsum, á böðum og í þvottahúsum eru frá HTH. Fataskápar fylgja skv. innréttingateikningum hverrar íbúðar og eru sömuleiðis frá HTH. Umfang, uppröðun, litir og efnisval innréttinga hverrar íbúðar eru tilgreind í viðauka viðkomandi íbúðar. Eldhús skilast með heimilistækjum frá Ormsson ehf., þ.e spanhelluborði, blástursofni, innbyggðri uppþvottavél, innbyggðum kæliskáp og gufugleypi. Hreinlætistæki eru af vandaðri gerð. Salerni eru vegghengd með innbyggðum vatnskassa og hæglokandi setu. Sturtur eru þreplausar með flísalögðum botni og hertu sturtugleri. Blöndunartæki og hitastýrð sturtutæki, handlaugar og eldhúsvaskur eru nánar tilgreind í viðauka viðkomandi íbúðar.
Innihurðar: Innihurðir eru yfirfelldar og sprautulakkaðar.
Upphitun og lagnir: Rör í rör kerfi að tengipunktum er innsteypt í gólfplötur. Upphitun er með ofnakerfi og varmaendurvinnslu loftræsikerfis. Ofnar eru hefðbundnir (Voryl eða sambærilegir) með ofnlokum (Danfoss eða sambærilegum). Handklæðaofnar eru í öllum baðherbergjum. Í þvottahúsum eru loftræislagnir lagðar ofan niðurtekins lofts. Neysluvatn er rör-í-rör kerfi innsteypt í gólfplötu. 
Raflagnir, rofar og tenglar: Raflagnir íbúða eru fullfrágengnar. Rafmagnstöflur eru uppsettar og spennusettar og rofar og tenglar eru í samræmi við raflagnateikningar. Íbúðum er skilað með uppsettri lýsingu skv. teikningum. Dyrasbjalla og bjölluhnappur er fyrir framan allar íbúðir. Ljósleiðari er dreginn í smáspennutöflu íbúðar.
Loftræsing: Hver íbúð er útbúin loftræstikerfi með varmaendurvinnslu. Loft er sogað úr eldhúsi, baðherbergjum og þvottahúsum og fersku lofti dælt inn í önnur rými. Kerfið endurvinnur varma, nýtir varma úr útsogslofti og hitar ferskt loft sem dælt er inn. Allt loft sem fer í gegnum kerfið er síað og er því minna af svifryki og frjókornum í íbúðunum en ella. Hægt er að stýra kerfinu á einfaldan hátt á vegg. Íbúar geta fengið sjálfvirka vöktun á loftræstingu frá þjónustuaðila.
Brunavarnir: Í öllum íbúðum eru handslökkvitæki af viðurkenndri gerð. Í hverri íbúð eru stakir reykskynjarar, að lágmarki einn skynjari fyrir hverja 80 fm.

Byggingaraðili og hönnuðir:
Byggingaraðili: Fortis ehf. - Félagið býr yfir meira en 25 ára reynslu af fjölbreyttum framkvæmdum, allt frá íbúðar-, verlsunar- og atvinnuhúsnæðum til iðnaðar-, tækni- og veitumannvirkja. Fyrirtækið leggur áherslu á byggja vandaðar íbúðir og kappkostar að veita góða þjónustu og standa undir væntingum verkkaupa og kaupenda.
Aðalhönnuður: Sindri Már Guðbjörnsson - Fortis ehf.
Burðarþols og lagnahönnuður: Guðþjón Þ. Sigfússon - VGS verkfræðistofa ehf.
Loftræsihönnuður: Emil Þ. Kristjánsson - Vektor ehf.
Raflagnahönnður: Sigurður Á. Pétursson - Rafhönnun
Byggingarstjóri: Brynjar Örn Áskelsson - Fortis ehf.

Vísað er til hönnunargagna, m.a. byggingarnefndarteikninga, varðandi nákvæmar útfærslur á atriðum sem ekki koma fram í skilalýsingunni. Auglýsingaefni er eingöngu til hliðsjónar. Almennt miðast skil hússins við vandaðan frágang og viðurkennd skil á nýju íbúðarhúsnæði. Misræmi getur verið á milli söluteikninga, teikninga arkitekta, viðauka íbúðar og innréttingateikninga framleiðanda. Komi upp misræmi gilda stimplaðar teikningar arkitekta, nema varðandi innréttingar, gólfefni og tæki, þá gilda viðauki viðkomandi íbúðar og innréttingateikningar framleiðanda.

Seljandi áskilur sér rétt til að gera útlits-, efnis- og tæknilegar breytingar á byggingartíma í samráði við hönnuði og að fengnu samþykki byggingaryfirvalda sé þess þörf vegna tæknilegra útfærslna. Þar sem tilgreindar eru tegundir tækja, innréttinga eða efna er átt við þær vörur eða sambærilegar á þeim tíma sem uppsetning á sér stað.

Athugið: Innimyndir með húsgögnum eru unnar með gervigreind og sýnir mögulega útfærslu rýma. Myndir geta innihaldið frávik eða ónákvæmni.
Athugið: Innimyndir eru úr íbúð 201, og eru birtar til viðmiðunar.


Kaupandi greiðir 0,3% skipulagsgjald sem er innheimt við endanlegt brunabótamat.

Allar nánari upplýsingar veitir: Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í síma 893-3276 eða holmar@helgafellfasteignasala.is.

Þorlákshöfn:
Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.  
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Helgafell Fasteignasala
www.helgafellfasteignasala.is

Myndir (39)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vallakór 6
Bílastæði
Skoða eignina Vallakór 6
Vallakór 6
203 Kópavogur
84.5 m2
Fjölbýlishús
312
858 þ.kr./m2
72.500.000 kr.
Skoða eignina Tryggvagata 21
Skoða eignina Tryggvagata 21
Tryggvagata 21
101 Reykjavík
88.2 m2
Fjölbýlishús
322
1235 þ.kr./m2
108.900.000 kr.
Skoða eignina Stefnisvogur 3 - Íb. 208
Bílastæði
Stefnisvogur 3 - Íb. 208
104 Reykjavík
85.3 m2
Fjölbýlishús
312
1019 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Skoða eignina Risadalur 2 - Íb. 202
Efsta hæð
Risadalur 2 - Íb. 202
260 Reykjanesbær
104.6 m2
Fjölbýlishús
413
645 þ.kr./m2
67.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin