Fasteignaleitin
Skráð 7. nóv. 2024
Deila eign
Deila

Grensásvegur 1A Íb.112

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
74 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
Verð
71.900.000 kr.
Fermetraverð
971.622 kr./m2
Fasteignamat
26.950.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Þóra Þrastardóttir
Þóra Þrastardóttir
Fasteignasali
Byggt 2024
Lyfta
Fasteignanúmer
2522152
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
12
Matsstig
4 - Fokheld bygging
Fasteignasalan TORG kynnir: Glæsileg 2ja herbergja íbúð á 1.hæð á Grensásvegi 1A, íbúð nr. 0112, sem skilast fullbúin með gólfefni. Íbúðin er skráð skv. Þjóðskrá 74,0m2 í góðu lyftuhúsi. Íbúðin skiptist í alrými með eldhúsi, borðstofu, stofu og útgengi út á verönd, 1 svefnherbergi með fataherbergi, baðherbergi, sér þvottahús og geymslu í sameign, skráð 7,8m2. Möguleiki er að leigja bílastæði í kjallara. Nánari upplýsingar veitir Þóra Þrastardóttir, löggiltur fasteignasali, í síma: 822-2225 eða tölvupósti: thora@fstorg.is 

Nánari lýsing: Gófhiti er í öllum rýmum og handklæðaofn í baði. Fallegar samrýmdar og sérsmíðaðar innréttingar, vönduð rafmagnstæki frá Bsoch, meðal annars innfeldur ísskápur, innbyggð uppþvottavél, Spanhelluborð, ofn og Eico vifta yfir eyju og/eða Bosch vifta undir skáp, þar sem við á. Baðherbergi og ef um sér þvottaherbergi er að ræða, eru flísalögð með flísum frá Casalgrande Padana. Hreinlætistæki eru frá Grohe og sturtuklefi með hertu sturtugleri og niðurfalli í gólfi. Sjá skilalýsingu og nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins: ***SMELLA HÉR -  SÖLUVEFUR G1***  

Nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma: 767-0000 eða tölvupósti: darri@fstorg.is

Nánar um verkefnið: Glæsilegar nýjar íbúðir á þessum eftirsóttastað í útjaðri Skeifunnar að Laugardalnum, sem er eitt fallegasta útivistarsvæði borgarinnar. Íbúðin er í göngufæri við alla almenna þjónustu s.s í Glæsibæ og Skeifunni. Alls eru áætlaðar allt að 204 íbúðir í þessu verkefni, sjá nánar á heimasíðu: Söluvefur G1.  Allar íbúðirnar eru innréttaðar á sama hátt. Íbúðum er skilað með eldhús-, bað- og þvottahúsinnréttingum (þvottahús er ekki í öllum íbúðum), ásamt fataskápum í forstofu og svefnherbergjum/fataherbergjum. Allar innréttingar eru í dökkum eikarlit í bland við hvítan akrýl sem er eitt það slitsterkasta efni sem völ er á í dag. Gólfhiti er í öllum rýmum íbúða. Ofnar eru í sameign og á geymslusvæðum fyrir utan sjálfan bílakjallarann. Innan íbúða verður stærsti hluti innveggja, þ.e. þeir sem ekki eru staðsteyptir, úr LEMGA léttsteypusteinum. Einungis lítill hluti veggja í húsinu verða gifsveggir. Sorpflokkun/sorplosun í húsinu er öll í sameiginlegri sorpgeymslu í kjallara innanhúss. Sorp verður losað um lúgur eftir tegund sorps. Engin sorpgeymsla eða flokkun er utandyra. Almennt gildir að íbúðum verður skilað máluðum í ljósum litum og án gólfefna fyrir utan flísalögn á bað- og þvottaherbergjum. Veggir á baðherbergjum verða flísalagðir fyrir utan vegginn þar sem gengið er inn í baðherbergi. Handklæðaofn er í öllum baðherbergjum. Gert er ráð fyrir allt að um 4.000 m2 af atvinnuhúsnæði, þ.e. skrifstofu-, veitinga og verslunarhúsnæði, sem að mestu leyti er í sérinngangi í sjö hæða norðurenda Grensásvegi 1A-hússins, en einnig er atvinnuhúsnæði á jarðhæð meðfram Grensásvegi og á allri jarðhæð 1C-húss sem staðsett er á suðurenda lóðar. Heildarfjöldi bílastæða er rúmlega 180 stæði í kjallara á þremur hæðum. Einnig er m.a. að finna sameiginlega hjólageymslu í kjallara fyrir um 400 hjól. Fjöleignarhúsin skiptast í fjögur sjálfstæð hús ofanjarðar með sjö stigagöngum, sameiginlegum kjallara, bílastæðum og geymslum. Geymslur fylgja öllum íbúðum og eru þær staðsettar á fyrstu og annarri hæð kjallara og eru flestar þeirra í svokölluðum geymslugangi sem er aðgengilegur frá bílakjallara en nokkrar þeirra snúa beint út í bílakjallara. Íbúar hafa aðgengi að einu eða fleiri bílastæðum í bílakjallara gegn gjaldi. Hægt verður að velja um fleiri en eina áskriftarleið eftir viðveru. Einnig verður möguleiki á skammtímaleigu á stæðum yfir hluta úr degi í gegnum stæðakerfið sem byggir á myndavélakerfi við inn- og útkeyrslu í bílakjallara frá Skeifunni. Húsin verða fjögurra til sjö hæða, sjö hæðir á lóðinni til norðurs á móti Glæsibæ, fimm hæðir á miðri lóð og fjórar hæðir í suðurenda lóðar að Skeifunni. Á milli húsanna er skipulagður sameiginlegur garður fyrir íbúa og snúa verandir stigaganga 1A, 1B, 1D, 1E og 1F að þeim garði. Inngangar inn í sum húsin liggja einnig í gegnum garðinn.  Göngustígar inni í garðinum verða steyptir/hellulagðir/malbikaðir að mestu leyti með snjóbræðslukerfi. Aðgengi inn í garðinn verður eingöngu fyrir gangandi og hjólandi fólk. Garðurinn verður opinn. Sólin skín frá suðri beint inn í inngarðinn á milli húsanna enda markmiðið að skapa skemmtilegan sælureit og leikaðstöðu. Gróður verður í garðinum og upp við íbúðir á jarðhæð sem snúa inn í garðinn. Sérafnotaréttur íbúða á jarðhæð er málsettur og afmarkaður með eins meters háum timburskjólveggjum. Frágangur á útjaðri lóðar verður vandaður og mun tengjast gangstéttum í kringum lóðina til að gera flæði fólks ofanjarðar og upp úr kjallara sem hentugast. Í allri hönnun er tekið tillit til fólks í hjólastólum eins og kröfur segja til um og í því samhengi verða t.d. átta lyftur í þeim fjórum húsum sem verða byggð á lóðarhluta I. Einnig verða fimm hjólastólastæði í bílakjallara með aðgengi upp á hæðir ofanjarðar. Nánari upplýsingar má finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins,  Söluvefur G1.  
Nánari upplýsingar veitir Þóra Þrastardóttir, löggiltur fasteignasali, í síma: 822-2225 eða tölvupósti: thora@fstorg.is 
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Orkureitur A íbúð 306
Opið hús:24. nóv. kl 12:00-13:00
Orkureitur A íbúð 306
108 Reykjavík
67.6 m2
Fjölbýlishús
211
1033 þ.kr./m2
69.800.000 kr.
Skoða eignina Stóragerði 38
Skoða eignina Stóragerði 38
Stóragerði 38
108 Reykjavík
92.9 m2
Fjölbýlishús
312
752 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Grensásvegur 1A Íb.607
Grensásvegur 1A Íb.607
108 Reykjavík
74.2 m2
Fjölbýlishús
21
1009 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Grensásvegur 1F íb.104
Grensásvegur 1F íb.104
108 Reykjavík
76.5 m2
Fjölbýlishús
211
966 þ.kr./m2
73.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin