Hilmar Arnarson, löggiltur fasteignasali, ásamt RE/MAX kynna fallega og vel skipulagða 2ja herbergja íbúð á 2. hæð að Furugrund 40 í Kópavogi. Íbúðin hefur verið endurnýjuð á afar smekklegan hátt þar sem vandað efnisval og gott skipulag er einkennandi. Eigninni tilheyra rúmgóðar, 14 m² svalir til suðvesturs sem ná eftir allri breidd íbúðarinnar. Harðparket frá Birgisson er á öllum gólfum að baðherbergi undanskildu. Baðherbergið er flísalagt með ljósum 60x60 flísum frá Álfaborg og er búið "walk in" sturtu með fallegu glerþili og innbyggðum gylltum AXOR blöndunartækjum. Raflagnaefni innan íbúðar hefur einnig verið endurnýjað og er frá GIRA. Eldhúsið er rúmgott með góðu skápaplássi, innbyggðum heimilistækjum og notalegum borðkrók við stóran glugga sem snýr út í garð.
Eignin er skráð 64,1 m² hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og skiptist í forstofu, stofu og borðstofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu í kjallara.
Helstu kostir eignarinnar: - Smekklega endurnýjuð íbúð með vönduðu efnisvali. - Bjart alrými með opnu flæði milli eldhúss og stofu. - Rúmgóðar, 14 m² svalir til suðvesturs. - Endurnýjað eldhús með innbyggðum heimilistækjum. - Fallegt baðherbergi með innbyggðum AXOR blöndunartækjum. - Aðstaða fyrir þvottavél innan íbúðar. - Rúmgott svefnherbergi með góðum fataskápum. - Einstaklega snyrtileg sameign. - Góð staðsetning í nálægð við skóla, íþróttasvæði og útivistarperlur Fossvogs.
Nánari lýsing Forstofa: Komið er inn í parketlagða forstofu. Harðparket á gólfum flæðir um öll rými íbúðarinnar að baðherbergi undanskildu og skapar fallega heild. Stofa og borðstofa: Bjart og notalegt alrými með opnu flæði að eldhúsi. Frá stofu er útgengt á rúmgóðar svalir. Svalir: Um 14 m² svalir sem snúa til suðvesturs og ná eftir allri breidd íbúðarinnar. Eldhús: Smekklega endurnýjað eldhús með góðu vinnu- og skápaplássi. Spanhelluborð með innbyggðum gufugleypi, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Gylltur vaskur og gyllt, útdraganlegt blöndunartæki setja fallegan svip á rýmið. Við stóran glugga sem snýr út í garð er notalegur borðkrókur. Svefnherbergi: Rúmgott og bjart með stórum glugga að garð- og svalahlið. Góðir fataskápar sem ná nánast upp í loft. Baðherbergi: Fallega endurnýjað og flísalagt með ljósum flísum frá Álfaborg. Sturta með glerþili og innbyggðum, gylltum AXOR blöndunartækjum, upphengt salerni og handklæðaofn. Falleg innrétting og hringlaga spegill með LED-lýsingu. Búið er að koma fyrir innréttingu fyrir þvottavél inni á baði. Geymsla: Sérgeymsla, 8 m² íbúðarinnar er í kjallara. Sameign: Einstaklega snyrtileg sameign. Í kjallara eru sameiginlegt þvottahús, þurrkherbergi og hjóla- og vagnageymsla. Bílastæði: Sameiginleg bílastæðalóð er fyrir Furugrund 40–54.
Hér er um að ræða virkilega fallega og vel skipulagða eign í rótgrónu hverfi en húsið er staðsett neðarlega í Fossvoginum við íþróttasvæði HK og leik- og grunnskóla. Í Fossvoginum eru hjóla- og göngustígar, leiksvæði, strandblakvellir og frispígolf. Frábært svæði til útivistar.
Framkvæmdir og viðhald árin 2025 og 2026 á vegum húsfélags: 2025 Skipt var um alla glugga á framhlið hússins og á gafli. Skipt var um öll ljós í stigagangi, að kjallara undanskildum. Sameign í kjallara var máluð, að þvottahúsi undanskildu. Neðri hluti framhliðar hússins var málaður.
2026 Þakið var yfirfarið, ryð hreinsað og skipt um nagla og gúmmíþéttingar þar sem þörf var á. Útihurðir að ruslageymslu og hjólageymslu voru málaðar.
Allar upplýsingar veitir Hilmar Arnarson löggiltur fasteignasali hilmar@remax.is sími 823-3673. Remax fasteignasala sími 477-7777. www.remax.is 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga). 2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar 4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Fyrirhugað er að endurnýja glugga íbúða og svalahurðir á vestur hlið hússins. Eignin verður afhent með nýjum gluggum og svalahurð. Sjá yfirlýsingu húsfélags.

Dagsetning
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
Nothæfur samningur
06/06/2023
39.700.000 kr.
41.500.000 kr.
56.1 m2
739.750 kr.
Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.