Fasteignaleitin
Skráð 27. nóv. 2025
Deila eign
Deila

Kristnibraut 101

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarholt og Úlfarsárdalur-113
110.2 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
78.900.000 kr.
Fermetraverð
715.971 kr./m2
Fasteignamat
70.100.000 kr.
Brunabótamat
62.770.000 kr.
Mynd af Hera Björk Þórhallsdóttir
Hera Björk Þórhallsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2004
Þvottahús
Lyfta
Garður
Bílastæði
Útsýni
Sérinng.
Fasteignanúmer
2267431
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
3
Vatnslagnir
Upprunalegt (2004)
Raflagnir
Upprunalegt (2004)
Frárennslislagnir
Upprunalegt (2004)
Gluggar / Gler
Upprunalegt (2004)
Þak
Upprunalegt (2004)
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
** EIGNIN ER SELD **

RE/MAX & HERA BJÖRK Lgf. (herabjork@remax.is  / 774-1477 ) kynna: 

Vel staðsett, rúmgóð og björt 4ra herbergja endaíbúð á 3.hæð (303) með svölum og bílastæði í bílskýli í góðu fjölbýlishúsi með lyftu við Kristnibraut 101 í Grafarholti. Fallegt útsýni er úr eigninni til fjalla. 

** SMELLIÐ HÈR fyrir nánari upplýsingar og/eða bóka tíma í OPIÐ HÚS þriðjudaginn 2.desember 2025 kl.16:00 (v/ birtuskilyrða) **
** SMELLIÐ HÉR til að fá söluyfirlitið sent samstundis **


Eignin er samtals 110,2 m² samkvæmt Þjóðskrá Íslands og samanstendur af forstofu, björtu alrými (stofa, borstofa og eldhús), 3 svefnherbergjum, baðherbergi, þvottahúsi, geymslu og bílastæði í bílskýli. 
Fasteignamat 2026: 77.850.000 

** SMELLTU HÉR og skoðaðu HÚSIÐ í 3-D, þrívíðu umhverfi **

Nánari lýsing:
Forstofa: Gengið er inn um sér inngang af svölum í flísalagða forstofu með góðum skáp og fatahengi. Fallegt útsýni við inngang yfir Úlfarsárdalinn, Úlfarsfellið og til fjalla. Úr forstofu er gengið í inn í hol og þaðan inn í aðrar vistarverur. 
Alrými: Eldhús er opið við stofu með góðri eldhúsinnréttingu og eikarparketi á gólfi. Ofn í vinnuhæð og tengi fyrir uppþvottavél. Stofan er björt og rúmgóð og þaðan er gengið út á suð-vestur svalir með fallegu útsýni upp Leirdalinn og upp á Reynisvatnsheiði. Eikarparket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott með góðum skápum og parketi á gólfi. 
Herbergi I: Með skáp. Parket á gólfi. 
Herbergi II: Með skáp. Parket á gólfi. 
Baðherbergi: Flísalagtt í hólf og gólf með baðkari/sturtu. Með eikinnréttingu og handlaug, Gluggi með opnanlegu fagi.
Þvottashús: Innrétting með vask og hillu og tengi fyrir þvottavél/þurrkara. Flísar á gólfi. 
Geymsla: Rúmgóð 6,8 m² sérgeymsla með góðum hillum er í kjallara.
Svalir: Gengið úr borðstofu út á skjólgóðar 7,8 m² svalir með fallegu útsýni til suð-vesturs. 
Bílastæði:  Er sérmerkt eigninni í skjólgóðu bílskýli með sér tengi fyrir hleðslustöð og góðu aðgengi frá bílastæði. Hægt væri að loka og gera að bílskúr með samþykki meðeigenda sem eru 2 íbúðir. 
Snyrtileg sameign með hjóla- og vagnageymslu.
Eikarparket á gólfum sem og eikarinnréttingar og innihurðar.

Virkilega skemmtileg og vel skipulögð íbúð í Grafarholti í mikilli nánd við náttúruna sem einkennir þetta hverfi með útvistarparadísirnar Úlfarsfell, Reynisvatn og Hólmsheiði í göngufæri.  Eignin er vel staðsett í þessu vinsæla hverfi og stutt í leikskólann Geislabaug og grunnskólana Ingunnarskóla og Sæmundarskóla. Skemmtilegt  leiksvæði eru rétt hjá og er þar einnig Frisbee golfvollur og stutt í golfvöll Grafarholts.  Félagssvæði Fram í Úlfarsárdal ásamt sundlaug og bókasafni er skammt undan. Gott aðgengi út á Vesturlandsveg og örstutt í almenningssamgöngur með strætótengingar við öll hverfi höfuðborgarsvæðisins.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Hera Björk löggiltur fasteignasali í síma 774-1477 eða á netfangið herabjork@remax.is 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
__________________________
Ertu í fasteignahugleiðingum?
Ég hef starfað við fasteignasölu síðan árið 2016 og legg mig fram um að veita persónulega og góða þjónustu, viðhalda góðu upplýsingaflæði og vanda vinnubrögð fyrir seljendur og kaupendur. Hjá mér færðu frítt sölumat og upplýsingar um ferlið án allra skuldbindinga. Hafðu samband í dag í síma 774-1477  eða á netfangið herabjork@remax.is. 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
31/10/202043.350.000 kr.48.000.000 kr.110.2 m2435.571 kr.
14/08/201838.050.000 kr.45.000.000 kr.110.2 m2408.348 kr.
09/05/200724.370.000 kr.25.000.000 kr.110.2 m2226.860 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Byggt 2004
Fasteignanúmer
2267431
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B0
Númer eignar
8
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
4.870.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Þórðarsveigur 30
Bílastæði
Þórðarsveigur 30
113 Reykjavík
97.4 m2
Fjölbýlishús
312
800 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Skyggnisbraut 6
Bílastæði
Skoða eignina Skyggnisbraut 6
Skyggnisbraut 6
113 Reykjavík
106.9 m2
Fjölbýlishús
413
734 þ.kr./m2
78.500.000 kr.
Skoða eignina Rökkvatjörn 1
Bílastæði
Skoða eignina Rökkvatjörn 1
Rökkvatjörn 1
113 Reykjavík
88.7 m2
Fjölbýlishús
312
890 þ.kr./m2
78.900.000 kr.
Skoða eignina Lofnarbrunnur 14
3D Sýn
Bílastæði
Skoða eignina Lofnarbrunnur 14
Lofnarbrunnur 14
113 Reykjavík
91.4 m2
Fjölbýlishús
312
841 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin