Vel skipulögð og björt 4ra herbergja íbúð á 2. hæð í góðu fjölbýli með sérmerktu bílastæði í Rimahverfi, Grafarvogi. Þvottahús og geymsla er innan íbúðarinnar. Eignin er vel staðsett í þessu vinsæla hverfi í Grafarvogi. Stutt er í skóla, leikskóla, íþróttaiðkun, afþreyingu, verslanir, alla helstu þjónustu og fallegar gönguleiðir.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 83,6 fm. og samanstendur af forstofu/holi, eldhúsi, stofu, borðstofu, 3 svefnherbergjum, baðherbergi, fataherbergi / geymslu og þvottahúsi innan íbúðar. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er i sameign á jarðhæð. Sameiginleg geymsla og önnur hjóla- og vagnageymsla eru í rými merktu 00-08 í kjallara í húsi nr. 20.
Fasteignamatið fyrir árið 2027 verður 63.500.000kr.
Nánari lýsing eignarinnar
Forstofa/hol með parketi á gólfi.
Eldhús / stofa / borðstofa er opið og bjart rými.
Eldhús með hvítri málaðri innréttingu, flísum á milli skápa, tengi fyrir uppþvottavél, ofn, helluborð, gufugleypir og parket á gólfi.
Stofa/borðstofa rúmgóð og björt með parketi á gólfi. Útgengt er út á rúmgóðar svalir úr stofunni.
Fataherbergi/geymsla er inn af holi með rennihurð og er með hvítum skápum án hurða og hvítum hillum. Parket á gólfi.
Baðherbergi er með baðkari með sturtuaðstöðu, hvítri innréttingu, speglaskáp, upphengt salerni en frágangur við klósettkassa er ólokið og flísum á veggjum að mestu og flísar á gólfi.
Svefnherbergi 1 mjög rúmgott með góðu skápaplássi og parketi á gólfi.
Svefnherbergi 2 rúmgott með fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi 3 rúmgott með fataskáp og parket á gólfi.
Þvottahús er innan íbúðar með innréttingu, hillum og þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Innihurðar hafa allar verið endurnýjaðar.
Parket á íbúðinni er nýlegt.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign á jarðhæð og í kjallara á húsi nr. 20.
Sameiginleg geymsla er í kjallara á húsi nr. 20.
Íbúðin er notaleg, björt, vel skipulögð og vel staðsett í þessu vinsæla hverfi í Grafarvogi. Stutt er í skóla, leikskóla, íþróttaiðkun, afþreyingu, verslanir, alla helstu þjónustu og fallegar gönguleiðir.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is