DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 3. sept. 2026

Skólagerði 30

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
159.4 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
124.900.000 kr.
Fermetraverð
783.563 kr./m2
Brunabótamat
80.500.000 kr.
Byggt 1965
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
20650853
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

Borg fasteignasala og María Mjöll kynna Skólagerði 30 Kópavogi. 159,4 m2 parhús á tveimur hæðum ásamt bílskúr.
Eignin hefur fengið gott viðhald og er mikið endurnýjuð.
Suðursvalir eru út frá hjónaherbergi á efri hæð, frá stofu á neðri hæð er útgengt á góðan sólpall.

** Bókið skoðun hjá Maríu í síma 866-3934**
 

Skipulag: Neðri hæð – forstofa, eldhús, þvottahús, gestasalerni, stofa, borðstofa.
Efri hæð – hjónaherbergi, fataherbergi, barnaherbergi, baðherbergi, geymsla/fataherbergi.

 
Nánari lýsing: Komið er inní forstofu með flísum á gólfi, við tekur opið rými sem tengir saman eldhús, borðstofu og stofu. Eldhús með hvítri innréttingu, flísar á gólfi, ofn í vinnuhæð,
helluborð og vaskur í eyju, granít borðplata, mjög gott skápa og vinnupláss í eldhúsi. Inn af eldhúsi er þvottahús með innréttingu, vaskur í borðplötu og skápar ofan borðplötu. Úr þvottahúsi er útgengt út í bakgarð. Stofa og borðstofa í opnu björtu rými, parket á gólfi, útgengt er úr stofu á timburverönd með skjólvegg sem snýr til suðurs.
Gestasalerni á neðri hæð með upphengdu salerni, baðinnréttingu, skápar, ofan og neðan borðplötu, flísar á gólfi.
Parketlagður stigi liggur upp á efri hæð hússins, lýsing er í veggnum við stigann.
Parketlagður gangur, þar er hjónaherbergi með parketi á gólfi, útgengi út á svalir sem snúa til suðurs, innaf hjónaherbergi er fatahebergi. Barnaherbergi með parketi á gólfi, áður voru þetta tvö herbergi. Baðherbergi með flísum á gólfi upphengdu salerni, baðkar með sturtuaðstöðu, innrétting með handlaug og speglaskápur fyrir ofan. Á ganginum er einnig geymsla/ fataherbergi.
Bílskúrinn er 36,6 m2 með rafdrifinni bílskúrshurð, innaf bílskúr er geymslurými. 
 
Annað: Hiti í gólfi á neðri hæð, möguleiki er að breyta barnaherbergi upp í tvö herbergi, var áður þannig. Einnig eru dæmi þess að búið sé að gera herbergi þar sem borðstofan er á neðri hæð.
Hiti er í hellulögðu plani sem liggur að bílskúrnum. Á baklóð er gróðurhús.
 
Upplýsingar um framkvæmdir undanfarinna ára frá seljanda:
2025 - Nýir gluggar (2) á suðurhlið uppi 
2024 - Ný útidyrahurð við aðalinngang
2024 - Nýtt baðherbergi á efri hæð 
2019 - Húsið klætt; suður-, vestur- og austurhlið
2017 - Nýtt þak á bílskúr 
2016 - Ný, rafdrifin bílsskúrshurð
2012 - 2013
Neðri hæð endurnýjuð að öllu leyti. 
Hiti lagður í gólf á neðri hæð
Gólfefni öll endurnýjuð
Nýtt eldhús, tæki og tilheyrandi. 
Baðherbergi endurnýjað niðri.
Nýjar vatns- og rafmagnslagnir
Nýjar skólplagnir
Ný útidyrahurð út í bakgarð 

Góð og barnvæn staðsetning í Vesturbæ Kópavogs nálægt skóla, leikskóla og annarri þjónustu. Stutt í fallegt útivistarsvæði.

Nánari upplýsingar veitir: María Mjöll Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8663934 eða maria@fastborg.is


Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.






 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Borg fasteignasala
http://fastborg.is

Myndir (44)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Silfursmári 2 (10-06)
3D Sýn
Bílastæði
Hleðslustöð
Opið hús:10. okt. kl 14:30-15:00
Silfursmári 2 (10-06)
201 Kópavogur
123,2 m2
Fjölbýlishús
312
1006 þ.kr./m2
123.900.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 16
Bílskúr
Efsta hæð
Opið hús:11. okt. kl 12:00-12:30
Skoða eignina Hnjúkamói 16
Hnjúkamói 16
815 Þorlákshöfn
157 m2
Fjölbýlishús
413
700 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Dúfnahólar 6
Bílskúr
Opið hús:12. okt. kl 17:30-18:00
Skoða eignina Dúfnahólar 6
Dúfnahólar 6
111 Reykjavík
160,3 m2
Fjölbýlishús
514
521 þ.kr./m2
83.500.000 kr.
Skoða eignina Staðarbakki 2
Opið hús:13. okt. kl 17:30-18:00
Skoða eignina Staðarbakki 2
Staðarbakki 2
109 Reykjavík
162,5 m2
Raðhús
514
732 þ.kr./m2
119.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin