Mikið endurnýjuð, björt og falleg endaíbúð með sérinngangi og 3 svefnherbergjum.Eignin er á jarðhæð innst í rólegri botnlangagötu í vinsælu hverfi í Grafarvogi.
* Sólpallur og sérverönd
* Endurnýjað eldhús, parket og innihurðir ma.
* Þakkantur endurnýjaður 2021
* Húsfélag hefur sérmerkt 2 bílstæði fyrir þessa íbúð við húsið.Nánari upplýsingar veita:
Helen Sigurðardóttir lgf. í 849-1921 eða helen@palssonfasteignasala.is
****palssonfasteignasala.is***
***verdmat.is****Birt stærð eignar samkv. Fasteignaskrá Íslands er 107m2
Eignin skiptist í forstofu, stofu / borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymsla. Forstofa er flísalögð með fataskáp.
Stofa / Borðstofa er opin með eldhúsi og parket á gólfi. Rúmgóð og útgengt út á rúmgóðan aflokaðan
Sólpall.Eldhúsið er með innréttingu og eldhúseyju, endurnýjuðum tækjum, spanhelluborði og bakarofni, tengi fyrir uppþvottavél. Útgengt út á hellulagða
verönd og sérafnotareit. Fordæmi eru fyrir
Sólpalli 2 út frá eldhúsi.
Svefnherbergin eru
þrjú og rúmgóð með parket á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt með handlaug með skúffum, skáp með spegli á vegg, wc og baðkar með sturtu.
Þvottahús er með vinnuborði með skolvask. tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla er í sameign ásamt sameiginlegri hjóla/vagnageymslu.
Endurnýjun síðustu ár tiltelur ma. endurnýjun á parketi, eldhúsi, innréttingu á baðherbergi, innihurðar að mestum hluta, tekinn niður veggur í eldhúsi og rafmagnstenglar yfirfarnir.
Snjóbræðsla er í stétt við framan húsið.
Afar barnvæn staðsetning í vinsælu hverfi í Grafarvogi, stutt að sækja þjónustu í Egilshöll, skóla, leikskóla, mikil nálægð við náttúruna og gólfvöll.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. 450 fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.