Jóhann Kristinn Jóhannesson löggiltur fasteignasali - RE/MAX kynnir:
Nýlega uppgerð einstaklingsíbúð í kjallara í NorðurmýrinniFalleg og nýlega uppgerð einstaklingsíbúð í kjallara í grónu og eftirsóttu hverfi í Norðurmýrinni, steinsnar frá miðbæ Reykjavíkur.
Gengið er inn um sameiginlegan inngang þar sem einnig eru tröppur upp á efri hæðir hússins. Stuttur gangur liggur að íbúðinni og komið er inn í forstofu sem tengir saman önnur rými eignarinnar.
Eldhús er rúmgott og bjart, með nýlegri innréttingu og helluborði. Harðparket er á gólfi og gluggi snýr út í garð.
Stofa/svefnherbergi er rúmgott og nýlega parketlagt, með hornglugga sem snýr út í garð hússins.
Baðherbergi er flísalagt, með sturtu, vaski og salerni.
Geymsla sem fylgir eigninni er gegnt íbúðinni í sameign. Við hlið hennar er sameiginlegt þvottahús með plássi fyrir þvottavélar allra þriggja íbúða stigagangsins.
Hús og lóð: Húsið var byggt árið 1938 og hefur samkvæmt upplýsingum íbúa fengið ágætt viðhald. Nýlegt gler er í öllum gluggum. Garðurinn er sameiginlegur og vel hirtur, afmarkaður af steinvegg frá aðliggjandi lóðum.
Athugið: Eignin er hluti af dánarbúi. Erfingjar hafa hvorki búið né dvalið í eigninni og þekkja því lítið sem ekkert til ástands hennar eða eiginleika.
Nánari upplýsingar veitir Jóhann Kristinn löggiltur fasteignasali í síma 846 3090 og johann@remax.is