DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 10. sept. 2026

Stangarbraut 28

SumarhúsSuðurland/Selfoss-805
149.7 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
144.900.000 kr.
Fermetraverð
967.936 kr./m2
Fasteignamat
2.820.000 kr.
Mynd af Jason Kristinn Ólafsson
Jason Kristinn Ólafsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Pallur
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2345445
Landnúmer
202439
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei
Lóð
0
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is og Betri Stofan fasteignasala kynna: Stangarbraut 28, nýtt hús í byggingu, sem selst rúmlega tilbúið til innréttinga og fullbúið að utan. Húsið stendur á 5400 leigulóð á einu vinsælasta golfvallasvæði landsins; Öndverðarnesi sem einnig býður uppá Sundlaug á svæðinu. Aðeins 10 mín akstur frá Selfoss, og örfáar mínútur frá Þrastalundi.

Eignin skiptist í anddyri, stórar og rúmgóðar stofur og eldhús í opnu rými með útsýni. Hjónasvítu með baðherbergi og fataherbergi, baðherbergi nr 2, og svefnherbergi nr 2 og 3 ásamt þvottahúsi / geymslu, Leyfilegt byggingarmagn er 250 fermetrar við þessa götu í Öndverðarnesi sem skartar útsýni yfir Hvítánna og er endalóð við Kambinn glæsilega.

Svæðið: 
Bústaðurinn er staðsettur í aðeins 45 mín keyrslu frá Reykjavík og einungis 10 mín akstri frá Selfossi. Öndverðarnessvæðið er lokað með rafmagshliði. Innan svæðisins er 18 holu golfvöllur með yfir 800 félagsmönnum, leiktæki fyrir börn og 6 holu æfingagolfvöllur sem er gjaldfrjáls, ásamt því að bústaðnum fylgir frír aðgangur í sundlaug svæðisins. 

Lóðarleigan er kr. 169 þusund fyrir árið 2026

Heilsárshús smíðað úr timbureiningum frá Bitus (BYKO), 149,7 m2, reist á steypta botnplötu. 
Húsið er byggt eftir teikningum Mansard ehf. Burðarþol- og lagnahönnun annaðist B2 ráðgjöf ehf. og raflagnir eru hannaðar af Tæknisýn ehf. 

Húsið afhendist fullbúið að utan með svartri, mattri, Toblerone álklæðningu í bland við svarta timburklæðningu og/eða slétta álklæðningu. 

Að innan afhendist húsið tilbúið til innréttinga, allt skv. ÍST 51, B3 að öðru leyti en fram kemur í skilalýsingu. 

Lóð afhendist grófjöfnuð, búið verður að jarðvegsskipta og móta lóðina að mestu leyti. 

Frágangur innanhúss
Húsið afhendist tilbúið til innréttinga, allt skv. ÍST 51, B3 að öðru leyti en fram kemur í skilalýsingu þessari. 
Útveggir eru timbureiningar skv. verklýsingu, klæddir með OSB og einu lagi af gipsi sem verður sandspartlað og grunnað.
Milliveggir eru timbureiningar skv. verklýsingu, klæddir með OSB og  gipsi, spartlaðir og grunnaðir. 
Timbureiningar í loftum skv. teikingum með raflagnagrind og loftadúk frá ENSO

Vandaðir ál-tré gluggar ásamt opnanlegum fögum frá Byko verða fullfrágengnir með glerjum og gluggabúnaði. Suðurgluggi er úr áli frá Raynaers með rennihurð.
Hitakerfi hússins er hitaveita, gólfhitakerfi, ásamt tilheyrandi búnaði með gjöfli frá PJB ehf.
Heimtaug rafmangs er tengd og frágengin. Pípur fyrir raf og boðlangnir milli taflna og tengidósa verða fullgerðar. Aðal- og greinitöflur eru fullgerðar m.t.t. vinnuljósa og uppsetts rafbúnaðar.

Gert er ráð fyrir Free@home stýringu sem fylgir ekki með.
Í húsinu verður lofskiptikerfi, með inn og útblæstri í öllum rýmum.

Frágangur utanhúss
Húsið verður frágengið að utan, klætt með toblerone álklæðningu, matt P10 í bland við svarta viðarklæðningu og/eða slétt ál. Þak verður fullfrágengið skv. teikningum með tvöföldu lagi af þakpappa Icopal, með frágengnum rennum og niðurföllum. 

Timburverönd skv. teikningu klædd með hitameðhöndlaðri furu.

Bílastæði og aðkoma að húsi verður þar sem búið er að jarðvegsskipta og er lóðin grófjöfnuð. Að öðru leyti er jarðvegur á lóð grófjafnaður.  Allar lagnir í lóð eru frágengnar. 

Hönnuður aðaluppdrátta: Mansard teiknistofa (Jón Hrafn Hlöðversson) 
Lagna og burðarþol: B2 ráðgjöf ehf. (Hafsteinn Halldórsson) 
Raflagnahönnun: Tæknisýn ehf. (Arnar Bjarnason) 
Byggingarstjóri: Ólafur Daði Helgason  
Húsa- og múrarameistari: Kjartan Björgvinsson (Kjartan ehf.) 
Pípulagnameistari: Ágúst Gestsson (Lagnadeildin ehf.) 
Rafvirkjameistari: Ívar Þórisson (Ljósblik ehf.) 

Allar nánari upplýsingar veitir Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (9)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Klausturhólar (c-gata)
Klausturhólar (c-gata)
805 Selfoss
155.6 m2
Sumarhús
413
546 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Kiðjaberg 131
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Kiðjaberg 131
Kiðjaberg 131
805 Selfoss
163.9 m2
Sumarhús
423
900 þ.kr./m2
147.500.000 kr.
Skoða eignina Freyjustígur 11
Á einni hæð
Skoða eignina Freyjustígur 11
Freyjustígur 11
805 Selfoss
150 m2
Sumarhús
423
199 þ.kr./m2
29.900.000 kr.
Skoða eignina Skógarás 5
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Skógarás 5
Skógarás 5
806 Selfoss
63.8 m2
Sumarhús
413
704 þ.kr./m2
44.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin