FastVest fasteignasala og Stefán Bjarki kynna: Brúarflöt 2, AkranesiUm er að ræða efri hæð í 7 íbúða fjölbýlishúsi.
Falleg vel hönnuð 98 fm íbúð á efri hæð með 2 svefnherbergjum, góðri stofu, eldhúsi, þvottaherbergi innan íbúðar og sér geymslu á neðri hæð.
Húsið var byggt 2004 . 3 íbúðir í þessum stigagangi.Sameign: forstofa með flísum á gólfi. Teppi á stigagangi. Hjólageymsla.
Íbúð:Forstofa með góðum skápum.
Hjónaherbergi með góðum skapum, parket á góli
Herbergi með skápum, parket á gólfi
Baðherbergi með hvítri innréttingu, flísar á gólfi og veggjum, baðkar með sturtu.
Eikarinnrétting í
eldhúsi og granít á borðum, stál á milli skápa.
Þvottaherbergi innan íbúðar, flísar á gólfi, vaskur, skápur.
Stofa, eldhús og gangur, með parketi á gólfi.
Úr stofu eru dyr útá
yfirbyggðar svalir. Sér
geymsla í kjallara, málað gólf, gluggi, innrétting, hillur, skápar, sameiginleg hjólageymsla með sér inngangi .
Lóðin er falleg og frágengin. Grasflöt og hellulagðar stéttir að húsinu frá bílastæðum.
Annað:Eldhúsgluggi endurnýjaður.
Búið að fjárfesta í gluggum í sameign. Greitt úr framkvæmdasjóði fyrir framkvæmdum við gluggaskipti. Ef vantar uppá þá greiða seljendur þann mismun.
Allar upplýsingar í söluyfirlitinu eru fengnar hjá seljendum og úr opinberum gögnum.
Nánari upplýsingar veitir:
Stefán Bjarki fasteignasali /s 896-9303/ stefan@fastvest.is.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. FastVest fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
FastVest með þér alla leið