Domus Fasteignasala kynnir í einkasölu:Domus Fasteignasala hefur fengið til sölu sjarmerandi og vel staðsetta íbúðarhæð með sérbílskúr í hinu eftirsótta Sundahverfi í Reykjavík. Um er að ræða bjarta og vel skipulagða eign á grónum stað þar sem stutt er í helstu þjónustu, samgöngur og útivist.
Nánari lýsingAðkoma að eigninni er góð. Sérstakt bílastæði er staðsett framan við bílskúrinn og gengið er upp steyptar útitröppur að sameiginlegum inngangi hússins. Við inngang íbúðar tekur á móti flísalögð forstofa.
Innan íbúðarinnar er opið og rúmgott miðrými með nýlögðu parketi, sem tengir helstu rými eignarinnar saman á þægilegan hátt.
Eldhús er með nýlegri og smekklegri innréttingu og býður upp á gott skápapláss, bæði í efri og neðri skápum.
Stofa og borðstofa mynda samliggjandi alrými með góðri birtu og notalegu yfirbragði. Úr stofu er gengið út á suðursvalir og stór gluggi setur skemmtilegan svip á rýmið.
Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni og eru þau bæði rúmgóð. Gott skápapláss er í stærra svefnherberginu.
Baðherbergið er flísalagt og búið sturtu, upphengdu salerni og smekklegri innréttingu með skápaplássi undir handlaug. Fyrir ofan vask er speglaskápur.
Upphituð geymsla er undir útistiga og veitir gott aukageymslurými. Rýmið býður jafnframt upp á þann möguleika að útbúa þar þvottaaðstöðu.
GarðurEigninni fylgir sérnotareitur í garði og beðum, samtals 226,7 m
2.
Samþykki með skilyrði um lokaúttekt byggingarfulltrúa hefur verið fengið fyrir byggingu palls á sérnotareitnum. Einnig liggur fyrir heimild til að gera tröppur frá svölum niður í garð.
Bílskúr og bílastæðiEigninni fylgir bílskúr sem er skráður 25,6 fm samkvæmt fasteignaskrá. Aðgengi að bílskúr er einnig frá garði sunnanmegin. Í bílskúrnum er tenging fyrir þvottavél auk heits og kalds vatns.
Bílskúrinn er bjartur og kann, að fengnum nauðsynlegum leyfum og samþykktum, að henta til breyttrar notkunar, til dæmis sem íbúð.
Sérbílastæði er fyrir framan bílskúrinn.
Viðhald og endurbæturÞak hússins var lagfært fyrir um það bil 15 árum. Þá var strompur fjarlægður og aluzink-járn sett á þakið.
Rafmagnstafla hússins hefur verið endurnýjuð og pípulagnir í kjallara hafa verið endurnýjaðar að hluta.
Árið 2025 var ráðist í umfangsmiklar endurbætur á íbúðinni. Meðal framkvæmda voru:
- Nýtt eldhús sett upp ásamt nýjum eldhústækjum
- Raflagnir og rafmagnstenglar endurnýjaðir
- Nýtt parket lagt í allri íbúðinni
- Loft og veggir málaðir
- Dimmerar settir í flest rými
AthugasemdirLagfæra þarf leka í glugga í eldhúsi, en fyrstu merki um fúamyndun eru komin fram í botnstykki gluggans.
Móðublettur er í glugga undir filmu í baðherbergi.
Sagað hefur verið fyrir lögnum í hornskáp í stærra svefnherberginu.
Gólflista vantar eftir að nýtt parket var lagt.
StaðsetningEignin stendur á góðum stað í grónu og vinsælu hverfi í Reykjavík. Sundin eru þekkt fyrir miðlæga staðsetningu, góða nærþjónustu og stuttar vegalengdir í skóla, leikskóla, verslanir, íþróttaaðstöðu, útivistarsvæði og helstu samgönguleiðir.
Hér er á ferðinni áhugaverð eign með bílskúr á eftirsóttum stað, sem hentar vel þeim sem leita að vel staðsettri íbúð í rótgrónu hverfi Reykjavíkur.
Upplýsingar veita Friðrik Halldór Brynjólfsson löggiltur fasteignasali s 662-8034 domus@domus.is, Stefán Ólafsson hrl. löggiltur fasteignasali s 891-9425 sol@domus.is og Sigurður Pétur Stefánsson s 698-6971 siggi@domus.isForsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Domus Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 64.480 kr.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.