DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 16. júlí 2026

Gnitakór 7

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-203
386 m2
8 Herb.
3 Baðherb.
Verð
255.000.000 kr.
Fermetraverð
660.622 kr./m2
Fasteignamat
241.550.000 kr.
Brunabótamat
189.350.000 kr.
Mynd af Snorri Björn Sturluson
Snorri Björn Sturluson
Hdl., Löggiltur fasteignasali. Eigandi.
http://valholl.isEignalisti
Garður
Svalir
Pallur
Heitur pottur
Bílskúr
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2274407
Landnúmer
197016
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunlegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suður svalir
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Margir inngangar
Gallar
Flísar á svölum eru lausar. Það þarf sennilega að taka þær af og flota svalirnar.
Hiti í bílaplani og stétt fyrir framan hús er óvirkur.
Rakabólur í vegg fyrir neðan glugga í hjónaherbergi.
Valhöll kynnir til sölu fallegt og vel skipulagt einbýlishús í Gnitakór 7 í Kórahverfinu í Kópavogi. Húsið er skráð 386 fm stærð og er á tveimur hæðum með góðum bílskúr. Gengið er inn á efri hæð hússins. Mögulegt er að vera með aukaíbúð á neðri hæð.

Fasteignamat ársins 2027 er áætlað 252.150.000 kr.

* 5 svefnherbergi
* 3-4 baðherbergi
* Aukaíbúð möguleg
* Stór alrými
* Rúmgóður bílskúr
* Heitur pottur

Skipulag eignar:

Efri hæðin skiptist í forstofu, bílskúr, tvö baðherbergi, eldús, stofu, borðstofu og þrjú svefnherbergi.

Neðri hæðin skiptist í sjónvarpsrými, svefnherbergi, þvottahús, tvær geymslur (mögulegt að útbúa baðherbergi úr annarri geymslunni) og rýmið þar sem hægt er að vera með aukaíbúð, en það rými skiptist í forstofu, stofu, svefnherbergi og baðherbergi.

Nánari lýsing:

Efri hæð:

Inngangur: Aðalinngangurinn í húsið er á efri hæðina. Húsið er fyrir neðan götu og því er gengið beint inn.
Forstofa: forstofa með fataskáp og flísum á gólfi.
Baðherbergi I: baðherbergi með sturtu, innréttingu, upphengdu salerni og flísum á gólfi.
Stofa: rúmgóð stofa með parketi á gólfi. Mögulegt að setja arinn. Stóri og bjartir gluggar.
Borðastofa: borðstofa i opnu rými með eldhúsi og stofu með parketi á gólfi og útgengi út á rúmgóðar svalir.
Eldhús: eldhús með hvítsprautulakkaðri innréttingu með stein á borði, tengi fyrir uppþvottavél og parket á gólfi.
Svefnherbergi I: með fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi II: með fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi III: með fataskápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi II: með baðkari, innréttingu, upphengdu salerni og flísum á gólfi.
Bílskúr: innangengt er inn í bílskúrinn frá forstofu. Bílskúrinn er skráður 44,1 fm á stærð hjá HMS.
Stigi: stiginn niður á neðri hæðina er í miðju alrýmisins. Loftgluggi er fyrir ofan stigann sem hleypir mikilli nátturulegri birtu inn í rýmið.

Neðri hæð:
Sjónvarpsrými: með parketi á gólfi og útgengi í bakgarðinn.
Svefnherbergi IV: rúmgott c.a. 20 fm herbergi með parketi á gólfi.
Þvottahús: með innréttingu og flísum á gólfi.
Geymsla I: stór glugglaus geymsla með steyptu gólfi.
Geymsla II: þessi geymsla er innaf sjónvarpsrýminu, átti upphaflega að vera baðherbergi og það er ennþá hægt að breyta þessu rými í baðherbergi.
Aukaíbúð: í þessu rými á einungis eftir að setja upp eldhús ef fólk vill nýta það sem aukaíbúð. Annað er til staðar. Hægt er að ganga inn í þetta rými frá sjónvarpsstofu eða inn um sérinngang á hlið hússins. Rýmið skiptist í forstofu, stofu, svefnherbergi með fataherbergi og baðherbergi með sturtuklefa.

Lóðin: fyrir framan húsið er með steyptu bílastæði og verönd og grasbala. Fyrir neðan húsið er stór timburverönd með heitum potti og grasabali. 

Nánari upplýsingar veitir:
Snorri Björn Sturluson löggiltur fasteignasali / lögmaður í síma 699-4407 eða snorribs@valholl.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.



 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2005
44.1 m2
Fasteignanúmer
2274407
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
15.650.000 kr.

Myndir (66)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Langafit 18
Skoða eignina Langafit 18
Langafit 18
210 Garðabær
165.4 m2
Einbýlishús
412
513 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Keldugata 10 raðhús
Bílskúr
Keldugata 10 raðhús
210 Garðabær
224.4 m2
Raðhús
725
668 þ.kr./m2
150.000.000 kr.
Skoða eignina Fjallakór 6
Bílskúr
Heitur pottur
e
Skoða eignina Fjallakór 6
Fjallakór 6
203 Kópavogur
293.7 m2
Einbýlishús
825
851 þ.kr./m2
249.900.000 kr.
Skoða eignina Rauðagerði 39
Opið hús:21. júlí kl 17:30-18:00
Skoða eignina Rauðagerði 39
Rauðagerði 39
108 Reykjavík
357.2 m2
Einbýlishús
826
641 þ.kr./m2
228.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin