NÁNARI UPPLÝSINGAR FÆRÐU HJÁ GUÐNÝJU ÞORSTEINS (alla virka daga milli kl.9 og 18) Í SÍMA 771-5211 EÐA GUDNYTH@ALDIRFASTEIGNIR.IS
ALDIR og GUÐNÝ ÞORSTEINS löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Virkilega huggulega og endurnýjaða 4ra herbergja íbúð á 4. hæð með fallegu útsýni á efstu hæð með 2 svölum við Stóragerði 8, 108 Reykjavík. Eigninni fylgir 20,9fm bílskúr í bílskúrslengju á lóð. Samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu er íbúðin er skráð 95,8fm þar af er 6,7fm geymsla í kjallara.
Eignin samanstendur af: 3 svefnherbergjum, eldhúsi, stofu og borðstofu, 2 svölum. bílskúr ásamt 2 geymslum.
Nánari lýsing
Forstofuhol: Er rúmgott, harðparketi á gólfi.
Eldhús / Borðstofa / Stofa: Eru í sameiginlegu opnu björtu og flæðandi rými með fallegu útsýni. Eldhúsið er með fallegri innréttingu á tvo vegu með innbyggðri uppþvottavél, span helluborði, gert er ráð fyrir ísskáp við hlið innréttingu. Úr stofunni er útgangur út á svalir.
Baðherbergi: Er með flísalögðu gólfi og veggjum að hluta , innrétting er með tveimur skúffum, þreplausri sturtu, opnanlegum glugga, veggföstu salerni ásamt handklæðaofni, tengi er fyrir þvottavél og þurrkara.
Herbergi 1: Er með fataskápum ásamt útgangi út á svalir. Parketi á gólfi.
Herbergi 2 og 3: Eru rúmgóð með harðparketi á gólfi.
Geymslur: Eru 2, önnur er innan íbúðar með parketi á gólfi en hin er 6,7fm að stærð og er í sameign
Bílskúr: Er 20,9fm að stærð með heitu og köldu vatni.
Samkvæmt fyrra söluyfirlit voru helstu framkvæmdir 2025:* Eldhús fært fram í stofu og þriðja svefnherberginu bætt við
* Eldhúsinnrétting endurnýjuð ásamt tækjum
* Baðherbergi endurnýjað
* Nýtt rafmagn dregið í alla íbúðina, ný ljós og nýir tenglar
* Öll gólfefni endurnýjuð
* Öll eignin spörsluð og máluð
* Innihurðar endurnýjaðar
Endurbætur á sameign:2018 - Húsið endursteinað
2022 - Sléttir fletir málaðir
2022 - Hitaþræðir settir í þakrennur
Athugasemd um stærð eignar:Samkvæmt fasteignaskrá HMS er íbúðin skráð 95,8 m² en samkvæmt þinglýstri eignaskiptayfirlýsingu er hún 93,2 m². Samkvæmt upplýsingum frá HMS stafar mismunurinn af því að fasteignaskrá var ekki uppfærð þegar eignaskiptayfirlýsingunni var þinglýst árið 1996.
Þetta er vel skipulögð íbúð á frábærum stað í Reykjavík. Stutt er í alla helstu þjónustu, s.s. leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla. Örstutt er í Austurver með alla sína þjónustu (matvöruverslun, bakarí, læknavakt, o.fl.). Stutt í verslunarmiðstöðina Kringluna.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vilja Aldir því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald – 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1,6% fyrir lögaðila (0,4% við fyrstu kaup einstaklinga).
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. – samkvæmt gildandi gjaldskrá sýslumanns.
Lántökugjald lánastofnunar – samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
Umsýsluþóknun til fasteignasölu – 79.900 kr. m.vsk.
Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Aldir fasteignir bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur. Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.