Sjarmerandi einbýlishús í hjarta Hafnarfjarðar með aukaíbúð og bílskúr - Holtsgata 19Tinna Bryde löggiltur fasteignasali og Háborg fasteignasala kynna fallegt og vel staðsett einbýlishús á einni vinsælustu götu Hafnarfjarðar. Eignin hefur verið í eigu sömu fjölskyldu frá upphafi og ber þess merki að vel hefur verið hugsað um hana í gegnum tíðina. Hér er um að ræða fjölskylduvæna eign með mikla möguleika, aukaíbúð og bílskúr.
- Frábær staðsetning í hjarta Hafnarfjarðar
- Aukaíbúð á jarðhæð
- Falleg og björt aðalhæð með svölum til suðurs
- Nýlega hellulögð verönd með snjóbræðslu Nánari upplýsingar um eignina veitir
Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma
660-5532 eða
tinna@haborg.isHúsið er skráð 192,3 fm samkvæmt HMS, þar af er bílskúr 32 fm.
Nánari lýsing:Aðalhæð:Gengið er inn í
forstofu sem leiðir inn á hol sem tengir saman rými hússins.
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp. Þar er einnig stigi upp á efri hæð.
Eldhús er í fallegum retro stíl, vel með farið og með gluggum á tvo vegu sem veita góða birtu, parket er á gólfi.
Svefnherbergi er með góðu skápaplássi, glugga og parketi á gólfi.
Baðherbergi er rúmgott, flísalagt á gólfi og veggjum, með viðarinnréttingu, handlaug, baðkari og salerni.
Stofa er stór og björt með gluggum í tvær áttir og útgengi út á svalir til suðurs, parket er á gólfi.
Efri hæð:Á efstu hæð eru
tvö svefnherbergi, bæði með gluggum. Annað herbergið er með dúk á gólfi en hitt með parketi. Gott
geymslurými er einnig á hæðinni.
Jarðhæð / aukaíbúð:Á jarðhæð er vel skipulögð aukaíbúð sem skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu, svefnherbergi og baðherbergi. Sameiginlegt og rúmgott þvottahús er einnig á hæðinni.
Forstofa er með flísum á gólfi og góðu skápaplássi.
Frá forstofu er komið inn á
hol sem tengir saman rými íbúðarinnar.
Eldhús er með hvítri innréttingu, góðu skápaplássi og tengi fyrir uppþvottavél. Gluggi er í eldhúsinu sem gefur fallega birtu og parket er á gólfi.
Stofa er rúmgóð og björt með gluggum á tvo vegu og parketi á gólfi.
Svefnherbergi er rúmgott með góðu skápaplássi, glugga og parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt á gólfi og upp á veggi, með góðri walk-in sturtu, handlaug og salerni.
Skólplagnir voru endurnýjaðar árið 2020 og dren sett umhverfis húsið
Bílskúr:Bílskúr með nýlega endurnýjuðu þakjárni og nýrri hurð. Gott bílastæði er fyrir framan skúr.
Lóð:Nýlega hefur verið hellulagt fyrir framan húsið og settur hiti í stétt sem nær að bílskúr.
Einstök staðsetning í hjarta Hafnarfjarðar þar sem öll helsta þjónusta, skólar, leikskólar og verslanir eru í göngufæri.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.