Bjarg Fast fasteignasala kynnir: Góða og bjarta 3ja herbergja endaíbúð á 2. hæð í Kópavogi, með sérinngangi. Gott aðgengi og fallegt útsýni yfir eitt helsta og stærsta útivistarsvæði á höfuðborgarsvæðinu, Heiðmörk. Stutt er í alla þjónustu s.s. grunn- og leikskóla, verslun, heilbrigðisþjónustu, veitingastaði, líkamsrækt og út á helstu stofnbrautir.
Eignin er skráð 121 fm á stærð með sameiginlegri vagna- og hjólageymslu á jarðhæð.
Bókið skoðun hjá Þórarni Kópssyni löggiltum fasteignasala í síma 615-3343 eða thorarinn@bjargfast.is
Eignin er með tveimur svefnherbergjum, einu baðherbergi, rúmgóðri stofu, stórum svölum, þvottahúsi, geymslu og eldhúsi með miklu skápaplássi. Frábær eign með mikla möguleika fyrir stækkandi fjölskyldu.
Nánari lýsing:
Anddyri: Gengið er inn á jarðhæð inn í flísalagt hol með fataskáp. Þvottahús: Gengið er upp flísalagðan stiga frá anddyri. Á vinstri hönd er flísalagt þvottahús þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara. Einnig er vaskur í borði ásamt glugga sem snýr í norður. Geymsla: Á móts við þvottahúsið er rúmgóð geymsla með flísalögðu gólfi og góðum hillum. Baðherbergi: Stórt flísalagt baðherbergi með innréttingu, sturtuklefa, upphengdu salerni, baðkari og handklæðaofni. Svefnherbergi: Rúmgott parketlagt svefnherbergi með glugga til suðurs og stórum fataskáp. Herbergi: Parketlagt herbergi með skáp og glugga til norðurs. Getur nýst sem barnaherbergi, skrifstofa ofl. Eldhús: Eikarinnrétting með miklu skápaplássi, ofn í vinnuhæð, rými fyrir einfaldan ísskáp, tengi fyrir uppþvottavél og glugga. Stofa: Stór og björt stofa með útgengi út á svalir, um 20fm, sem snúa í suður með litlum geymsluskúr.
Íbúðin í dag er nýtt sem 3ja herbergja en skv teikningu er hún 4ra herbergja – fyrir vikið er stofan mjög rúmgóð og auðvelt að stúka af herbergi.
Eigandi vill koma á framfæri, að væntanlegar eru viðgerðir á gluggum á suðurhlið og svalahurð. Fyrirhugað er að hækka húsfélagsgjöld. Móða er á milli glerja í borðstofuglugga. Laga þarf fúgu á milli flísa í eldhúsi. Mála þarf svalagólf.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.