LIND fasteignasala / Tara Sif Birgisdóttir lögg. fasteignasali kynnir einstaklega bjarta fjögurra herbergja 99 fm íbúð með sólpalli og sérinngangi á jarðhæð í litlu fjölbýlishúsi við Hringbraut 58 í Hafnafirði.
Sólpallur með glæsilegu útsýni og gróðursæll garður allt um kring. Þvottahús og geymsla innan íbúðar. Einungis þrjár íbúðir eru í húsinu. Eignin er vel staðsett í fjölskylduvænu hverfi en leik- og grunnskóli, sundlaug og miðbær Hafnafjarðar eru m.a. í göngufæri.Eignin skiptist í: Forstofu, eldhús, samliggjandi borðstofu/stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Framkvæmdir síðustu ár skv. seljanda: - Gólf flotað og parketlagt 2019.
- Eldhúsinnrétting endurnýjuð 2019.
- Skipt um gler eftir þörfum 2022.
- Ný borðplata og vaskur í eldhús 2022.
- Baðherbergið tekið í gegn 2024.
- Neysluvatnsrör endurnýjað 2024.
- Nýr ofn í hjónaherbergi 2026.
- Múrviðgerðir á stiga utanhúss 2026.
Nánari lýsing:
Forstofa: Flísar á gólfi, fataskápur.
Eldhús: Parket á gólfi, hvít innrétting með góðu skápaplássi, innbyggð uppþvottavél, nýleg gyllt blöndunartæki, spanhelluborð.
Stofa/ borðstofa: Björt og opin, parket á gólfi, fallegt útsýni yfir höfnina, útgengt á afgirtan sólpall.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, hvít innrétting, speglaskápur, sturta með svörtum blöndunartækjum, upphengt salerni.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi, rúmgóður fataskápur.
Svefnherbergi I: Parket á gólfi.
Svefnherbergi II: Parket á gólfi.
Allar upplýsingar um eignina veitir Tara Sif Birgisdóttir í síma 847 8584 / tara@fastlind.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.