VALBORG fasteignasala kynnir í einkasölu neðri sérhæð við Breiðamörk 11, 810 Hveragerði.
Fjögurra herbergja íbúð a jarðhæð í tvíbýli, auk útleigueiningar í bílskúr sem skráður er 40,1 m² en íbúðin er skráð 77,20 m².
Eignin telur forstofu, alrými með eldhús, borðstofu og stofu, þrjú svefnherberg, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.
Eignin er samtals 117,3 m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Garður í sameign, pallur í suður frá stofu, rúmgóð innkeyrsla.
Eignin getur verið laus fljótlega.
Sjá staðsetningu hér.
Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.Nánari lýsing:
Forstofa er frá bílastæði Heiðmerkur megin við húsið.
Hol sem tengir saman vistaverur íbúðarinnar.
Hjónabergi með tvöföldum fataskáp og glugga við austurs.
Svefnherbergi I með einföldum fataskáp, gluggi til austurs.
Svefnherbergi II án fataskáps, gluggi til vesturs.
Baðherbergi með walk-in sturtuhorni, handlaug, frístandandi wc, baðkar hefur verið fjarlægt og og flísar að hluta. Gluggi til norðurs.
Alrými sem telur eldhús, stofu og borðstofu:
Eldhús með nýlegri eldhúsinnrétting og tækjum. Helluborð og veggháfur, ofn í vinnuhæð, örbylgjuofn, gert ráð fyrir uppþvottavél. Gluggar til austurs og út í suðurgarð.
Stofa og
borðstofa eru einnig með gluggum til suðurs en líka í vesturátt, útgengt er út á sólpall úr rýminu.
Sólpallur fyrir utan stofu snýr til suðurs.
Þvottahús er í viðbyggingu sem tengist bæði húsi og bílskúr. Gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara, góðir skápar.
Bílskúr hefur verið breytt í litla íbúð sem leigð er út. Innréttað 2020.
Bílastæði er rúmgott, aðgengilegt frá Heiðmörk.
Garður er við sunnan og austan megin við húsið.
Gólfhiti er í allri eigninni.
Nýlegar framkvæmdir skv. seljanda:
2013 - Raf- og vatnslagnir í íbúðarhlutanum endurnýjað og hiti fræstur í gólf.
2013 - Nýtt gler í glugga íbúðarinnar að útidyrahurð undanskildri.
2019 - Eldhúsinnrétting endurnýjuð og alrými stækkað.
2020 - Bílskur innréttaður og endureinangraður.
2021 - Sólpallar smíðaðir.Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, lgf, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.
Elínborg María Ólafsdóttir, lgf, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.Aðrar eignir sem við seljum má sjá héhttp://valborgfs.is/soluskrar.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.