Fasteignaleitin
Skráð 26. mars 2024
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - Villamartin

FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
92 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
33.900.000 kr.
Fermetraverð
368.478 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Þvottahús
Lyfta
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
610110724
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Svalir
Góðar svalir og möguleiki á sér þakverönd
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sameiginlegur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FLOTTAR ÍBÚÐIR - FRÁBÆR STAÐSETNING* *STUTT Í LA ZENIA BOULEVARD*

Fallegar og vel staðsettar 3ja herb. íbúðir á frábærum stað á La Zeniasvæðinu, stutt frá La Zenia Boulevard, ca. 50 mín akstur frá Alicante flugvelli. Ca. 20 mín göngufæri á fallega strönd.  Stutt göngufæri í Los Dolces þjónustukjarnann, þar sem er gott úrval veitingastaða og verslana. Gróið og fallegt umhverfi. Einstakt tækifæri til að eignast nýja og flotta íbúð á fínu verði í frábæru umhverfi.

Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, karl@spanareignir.is. GSM 893 2495

Nánari lýsing:

Um er að ræða nýbyggð lyftuhús með 3ja og 4ra herb. vel hönnuðum, rúmgóðum og björtum íbúðum. Hægt er að fá íbúðir með tveimur eða þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum, góðri stofu/borðstofu og stóru eldhúsi með fallegri innréttingu. Hægt er að velja íbúðir á jarðhæð með sér garði, miðhæðum með góðum svölum eða á efstu hæð og þá með svölum og rúmgóðum einka þaksvölum. Falleg hönnun og vandaðar innréttingar. Glæsileg sameign með sameiginlegum sundlauargarði.

Íbúðirnar afhendast með rafmagnstækum í eldhúsi.
Einnig eru íbúðirnar með aircon með bæði hita og kulda, led lýsingu, sturtuglerjum. 
Penthouse íbúðir eru með útieldhúsi og sturtu á þakveröndinni.

Sér geymsla og stæði í lokuðu bílakjallara fylgja.
Falleg hvít  sandströnd sem liggur að Miðjarðarhafinu er í stuttu göngufæri og hefur hún fengið BLUE FLAG viðurkenninguna. Þar eru fallegar gönguleiðir og skemmtilegt “promenaði” er meðfram ströndinni sem býður upp á skemmtilegar gönguferðir.

Fjölbreytt úrval verslana og veitingastaða í örstuttu göngufæri, t.d. í Los Dolces og La Zenia Boulevard, sem ný og glæsileg miðstöð verslana, veitingastaða og fjölbreyttrar afþreyingar. Alicante flugvöllur er í ca. 50 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 15 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira. Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. Stutt er í dýragarðinn í Elche.

Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast glænýja og vandaða íbúð á frábærum stað, stutt frá  öllu því sem gerir dvölina á Spáni  skemmtilega.
Íbúðirnar eru til afhendingar strax og á næstu mánuðum.

Verð miðað við gengi 1Evra = 150ISK
Týpa A
3ja herbergja íbúð (tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi): frá 226.000 Evrum (ISK. 33.900.000 ) + kostn. við kaupin.
Týpa B og C
4ra herb. íbúð (þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi): frá 262.000 Evrum (ISK 39.300.000) + kostn. við kaupin.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með hagstæðum vöxtum.

Kostnaður við kaupin: 10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: ný eign, sameiginlegur sundlaugargarður, þakverönd, sér garður, air con, bílakjallari, 
Svæði: Costa Blanca, Villamartin,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
610110724

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Villamartin
SPÁNAREIGNIR - Villamartin
Spánn - Costa Blanca
86 m2
Fjölbýlishús
322
410 þ.kr./m2
35.300.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Los Altos
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - Los Altos
Spánn - Costa Blanca
75 m2
Fjölbýlishús
322
461 þ.kr./m2
34.600.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR-San Miguel de Salinas
SPÁNAREIGNIR-San Miguel de Salinas
Spánn - Costa Blanca
84 m2
Hæð
423
410 þ.kr./m2
34.400.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Pilar de la Horadada
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - Pilar de la Horadada
Spánn - Costa Blanca
93 m2
Fjölbýlishús
423
357 þ.kr./m2
33.200.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache