***Tilbúin til afhendingar við kaupsamning***Halldór og Skeifan kynna í einkasölu: Virkilega skemmtilega og vel skipulagða 67,5 fm, 2ja herbergja íbúð á 2. hæð við Víðivang 3 í Hafnarfirði, merkt 20203Íbúðin er einstaklega vel skipulögð með björtu alrými, skjólgóðum svölum og flottu flæði. Heildarstærð eignarinnar er 67 m², þar af er geymsla skráð 6,2 m²
Nánari lýsing:Forstofa & Gangur: Flísalögð með dökkum náttúruflísum sem flæða áfram inn í hluta annara íbúðarinnar. Rúmgóður fataskápur með innbyggðum skolvaski er á gangi.
Eldhús: Snyrtileg eikarinnrétting með góðu skápaplássi, grárri borðplötu og flísum á milli skápa. Innbyggður ofn, helluborð og tengi fyrir uppþvottavél. Gluggi tryggir flotta dagsbirtu og skemmtilegt útsýni. Eyja/innrétting skilur að eldhús og stofu.
Stofa / Borðstofa: Rúmgott og bjart alrými með stórum gluggum sem hleypa mikilli birtu inn. Rýmið rúmar vel bæði setustofu og borðkrók. Gólf er flísalagt og parketlagt að hluta.
Svefnherbergi: Mjög rúmgott með vönduðu eikarparketi á gólfi og vönduðum, samfelldum fataskáp. Úr herberginu er útgengt á svalir.
Baðherbergi: Smekklega innréttað og flísalagt í hólf og gólf. Dökkar flísar á gólfi og við baðkar en ljósar flísar á veggjum að hluta. Vegghengt salerni, skápur undir handlaug og speglaskápur með innfelldri lýsingu. Baðkar með sturtuaðstöðu og glervegg. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Sérgeymsla er 6,2m² í sameign
Þvottahús/þurrkherbergi: Er í sameign.
Hjólageymsla: Er í sameign.
Helstu framkvæmdir og viðhald á undanförnum árum:Á árunum 2024 og 2025 Gluggar og hurðir: Skipt var um stóran hluta glugga, einnig flestar svalahurðir hússins.
Steyptir fletir: Gengið var í sprunguviðgerðir á útveggjum.
Málun: Húsið málað að hluta.
Staðsetning og nærumhverfi:Eignin er vel staðsett í grónu og fjölskylduvænu hverfi í Norðurbæ Hafnarfjarðar. Stutt er í leik- og grunnskóla, matvöruverslanir og aðra helstu þjónustu. Víðistaðatún er í næsta nágrenni og býður upp á fallegt útivistarsvæði.
Nánari upplýsingar veitir HALLDÓR / Sími: 618-9999 / HALLDÓR@SKEIFAN.ISKaupendur greiða skipulagsgjald þ.e 0,3% af endanlegu brunabótamati þegar það verður innheimt.
Kostnaður kaupanda vegna kaupa: Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er 0,8% og lögaðila 1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum, oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.700 kr fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Skeifan fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.