Skráð 17. mars 2023
Deila eign
Deila

Hjallavegur 42

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
125.8 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
93.900.000 kr.
Fermetraverð
746.423 kr./m2
Fasteignamat
66.650.000 kr.
Brunabótamat
49.950.000 kr.
Byggt 1946
Þvottahús
Garður
Útsýni
Gæludýr leyfð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2017916
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðar í húsi
3
Hæðar í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta / ekki vitað
Raflagnir
Endurnýjað að hluta / Ný tafla
Frárennslislagnir
Endunýjað að hluta / ekki vitað
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta/upprunalegt
Þak
Endurnýjað 2002
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
*** EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA UM FJÁRMÖGNUN ***

Góður áhugi var fyrir eigninni. 
Ef þú ert með sambærilega eign og hefur áhuga að að fá verðmat þér að kostnaðarlausu smelltu þá HÉR 
Ef þú ert að leita að framtíðareign og vilt vera á lista fyrir sambærilegar eignir smelltu þá HÉR

_________________________________________________________________________________________
RE/MAX, HERA BJÖRK Lgf. og BJARNÝ BJÖRG aðstoðarmaður fasteignasala / í löggildingarnámi kynna: 

Sérlega sjarmerandi, björt og mikið endurnýjuð 5 herbergja  sérhæð og ris í fallegu húsi við Hjallaveg 42 í Reykjavík með sérinngangi og rúmgóðum geymsluskúr á sameiginlegri lóð með skjólsælum palli og matjurtargarði. Eign sem vert er að skoða. 

Eignin er skráð 125,8 m² hjá Þjóðskrá og samanstendur af forstofu, alrými (eldhús/stofa/borðstofa), 4 góðum svefnherbergjum, sjónvarpsholi, baðherbergi, geymslum í risi, geymsluskúr (ekki inni í m² tölu) og sameiginlegu þvottahúsi.

Nánari lýsing eignar - NEÐRI HÆÐ:
Forstofa -  Komið er inn í flísalagða forstofu. Fataskápur með rennihurð. Hiti í gólfi og handklæðaofn. Úr forstofugangi er gengið niður í sameign og þvottahús. 
Alrými (Stofa og borðstofa) - Úr forstofu er gengið inn í opið og bjart parketlagt alrými með fallegum frönskum gluggum til suðurs og vesturs. Úr alrými er gengið upp á rishæð íbúðarinnar um fallegan teppalagðan viðarstiga. Aukin lofthæð er á rishæð íbúðarinnar sem var byggð árið 2002. 
Eldhús -  Eldhús er rúmgott og bjart með nýrri og fallegri eldhúsinnréttingu frá IKEA með sérsmíðaðri borðplötu frá Fanntófell. Tveir Siemens ofnar með sjálfvirku eldunarkerfi og innbyggðum örbylgjuofni. Siemens spam helluborð og AirForce háfur með ljósi.  Tvöfaldur Samsung kæli- og frystiskápur með vatnsskammtara og innbyggð uppþvottavél sem fylgir.
Baðherbergi -   Endurnýjað og rúmgott með glugga til suðurs. Flísar á gólfi og veggjum.  Stór flísalögð sturta með sandblásnu sturtugleri, vegghengt salerni, innrétting með vask og veggskápum ásamt rúmgóðum innbyggðum skápum.
Herbergi I - Er innaf forstofu, parketlagt og rúmgott með fataskáp.
Sameign - Er í kjallara með sameiginlegu þvottaherbergi með sér tenglum fyrir hverja íbúð. Hægt að ganga út á verandir á baklóð. 
EFRI HÆÐ:
Sjónvarpshol -
Parketlagt með geymslurými með hillum á tveim stöðum við og undir súð. Fallegt útsýni er frá rishæð og frá svölum út á sjóinn, að Esjunni og víðar. 
Hjónaherbergi - Er á efri hæð, bjart og rúmgott með parketi á gólfi.  Fataskápar með rennihurðum og góðum hirslum á heilum vegg. 
Herbergi II -   Rúmgott og bjart með útgengi á svalir til norðurs, austurs og vesturs með dýrindis útsýni út á sjóinn, að Esju og upp til fjalla til austurs og víðar. Parket á gólfi
Herbergi III -  Bjart með fallegu útsýni yfir borgina og út á flóann. Parket á gólfi.

GARÐUR & LÓР
Garðurinn við nr. 42 er fallega gróin með hellulagðri verönd og viðarpalli með skjólveggjum sunnan við húsið og matjurtargarði. Lóðin, sem er 1.034,5 m² að stærð, er fullfrágengin og sameiginleg með húsunum nr. 42 - 44 við Hjallaveg og er samkomulag á milli eigenda um skiptingu á umsjón, viðhaldi og afnotum til helminga.
Geymsluskúr -  Er 12 m² og í séreign. Stendur á framanverði lóð með glugga á austurhlið. Rafmagn lagt utanhúss og að grindverki við bílatæði til hleðslu rafbíls. 
Bílastæði - Er framan við hús. 

Ástand eignar
Eignin er í góðu ástandi og hefur verið vel viðhaldið og innviðir endurnýjaðir á vandaðan máta í gegnum tíðina.
2021-2023
- Veggur á milli eldhús og stofu felldur og opnað inn í alrými. Eldhús endurnýjað frá A-Ö með innréttingum og tækjum. 
- Gólf neðri hæðar flotað og öll íbúðin parketlögð með slitsterku parketi frá Harðviðarval. 
- Stigi upp á efri hæð teppalagður með Sisal teppi með fiskbeinamynstri frá Casa Mia.
- Rafmagn lagt utanhúss í geymsluskúr í garði og að grindverki við bílatæði til hleðslu rafbíls.
2018 - 2020
- Húsið að utan var múrviðgert og málað 2018
- Skólplagnir voru fóðraðar og skipt um brunn í lóð
-  Drenlagnir og neysluvatnslagnir endurbættar
- Raflagnir og tafla endurnýjuð. 
Fyrri framkvæmdir
- Þakhæð var byggð ofan á húsið árið 2002 og klætt að utan.  
- Þak endurnýjað við sama tækifæri. 

Hér er því um að ræða virkilega góða og vel staðsetta eign í þessu vinsæla og rólega gróna hverfi miðsvæðis í borginni og í mjög þægilegu göngufæri við skóla, verslanir, þjónustu og útivistarparadísina í Laugardalnum. Stutt í mannlíf og menningu miðborgarinnar og gott aðgengi út á helstu umferðaræðar og almenningssamgöngur.

Í 3D getur þú skoðað eignina hvar sem þú ert í þrívíðu umhverfi, ferðast auðveldlega á milli herbergja og kynnt þér rýmið. 

Allar nánari upplýsingar veitir Bjarný Björg Arnórsdóttir aðstoðarmaður fasteignasala / í lögg.námi í síma 694-2526 á milli kl. 10:00 og 17:00 alla virka daga eða á netfanginu bjarny@remax.is. 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill REMAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.  

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 59.900 kr. m.vsk
_________________________________
Ertu í fasteignahugleiðingum?
Ég hef starfað við fasteignasölu frá janúar 2017 þegar ég ákvað að venda mínu kvæði í kross og hefja störf sem fasteignasali. 
Ég legg mig fram um að veita persónulega og góða þjónustu, viðhalda góðu upplýsingaflæði og vanda vinnubrögð fyrir seljendur og kaupendur.
Hjá mér færðu frítt sölumat og upplýsingar um ferlið án allra skuldbindinga.
Hafðu samband í dag í síma: 774-1477 eða á netfangið herabjork@remax.is 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
25/02/202152.350.000 kr.71.500.000 kr.125.8 m2568.362 kr.
27/01/202152.350.000 kr.67.500.000 kr.125.8 m2536.565 kr.Nei
25/08/202050.600.000 kr.62.250.000 kr.125.8 m2494.833 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2023
Mynd af Hera Björk Þórhallsdóttir
Hera Björk Þórhallsdóttir
Löggiltur fasteigna- og skipasali

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Arkarvogur 8
Bílastæði
Skoða eignina Arkarvogur 8
Arkarvogur 8
104 Reykjavík
123.6 m2
Fjölbýlishús
413
776 þ.kr./m2
95.900.000 kr.
Skoða eignina Grænlandsleið 27
Grænlandsleið 27
113 Reykjavík
146 m2
Hæð
2
643 þ.kr./m2
93.900.000 kr.
Skoða eignina Hallgerðargata 11A
Hallgerðargata 11A
105 Reykjavík
114.5 m2
Fjölbýlishús
413
781 þ.kr./m2
89.400.000 kr.
Skoða eignina Hallgerðargata 11A
Hallgerðargata 11A
105 Reykjavík
121.1 m2
Fjölbýlishús
413
784 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2023 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache