Valhöll fasteignasala kynnir fallegt og mikið endurnýjað einbýlishús á rólegum og góðum stað í Breiðholtinu. Húsið, sem er staðsett neðst í botnlangagötu, er umlukið miklum gróðri og nýtur mikils skjóls. Húsið er sannkallað fjölskylduhús með fimm herbergjum, tveimur baðherbergjum, góðum garði og bílskúr. Þá er möguleiki á að útbúa aukaíbúð með sérinngangi á neðsta palli hússins. Undir húsinu er svo óútgrafið rými þar sem auðvelt er að komast að lögnum sem býður upp á mikla möguleika á breytingum á skipulagi.
Eignin er skráð 227,8 fm á stærð hjá HMS sem skiptist í 198,6 fm hús og 292, fm bílskúr.
Húsið var mikið endurnýjað síðastliðið sumar og lítur það vel út. Meðal endurbóta sem farið var í má nefna nýtt eldhús, gólfefni, innihurðar, gluggalistar og gler að hluta, frálennslislagnir að hluta, hluta af lóð tyrfð og húsið málað. Sjá lista yfir endurbætur neðar í lýsingu.
Þetta er góð fjölskyldueign sem vert er að skoða. Stutt í helstu þjónustu og fallegar göngu-og hjólaleiðir í Elliðaárdal.
Nánari lýsing:
Anddyri: með fataskáp og flísum á gólfi.
Baðherbergi 1: með sturtu, innréttingu undir vaski og speglaskáp fyrir ofan og flísum á gólfi og veggjum.
Svefnherbergisgangur: með parketi á gólfi.
Svefnherbergi: 5 herbergi sem hægt er að nota með parketi á gólfi.
Baðherbergi 2: með baðkari, innréttingu undir vaski og speglaskáp fyrir ofan og flísum á gólfi og veggjum.
Eldhús: með fallegri nýrri innréttingu og tækjum, uppþvottavél, ofni í vinnuhæð, borðkrók og parketi á gólfi.
Þvottahús: innaf eldhús með fallegri nýrri innréttingu, skolvask, aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara og flísum á gólfi.
Stofa: gengið er upp nokkur teppalögð þrep í stofuna og er hún með stórum og björtum gluggum í þrjár áttir, aukinni lofthæð og parketi á gólfi.
Geymslur í kjallara: tvær geymslur í kjallara með hillum.
Anddyri í kjallara: með flísum á gólfi.
Bílskúr: 29,2 fm bílskúr í bílskúrslengju með vatni, rafmagni, hita og bílskúrshurð með rafmagnsopnara.
Lóð: skjólgóður garður með grasbala, trjám og runnum.
Endurbætur á húsi sumarið 2026:
Gluggalistar endurnýjaðir á öllum gluggum og gler endurnýjað að hluta.
Hús, gluggar og hurðar málaðar að utan.
Rafmagn endurnýjað að hluta. Þannig er búið að skipta út öllum tenglum og rofum. Þá hafa öll ljós verið endurnýjuð ásamt því að rafmagnstafla hefur verið yfirfarin.
Neysluvatnslagnir endurnýjaðar í eldhúsi.
Fráveitulagnir endurnýjaðar. Þá hefur skólp verið endurnýjað að hluta.
Búið að mála allt húsið að innan.
Eldhús endurnýjað ásamt eldhústækjum, þ.e. innbyggð uppþvottavél, helluborð með gufugleypi og ofn.
Öll gólfefni endurnýjuð en parketið er Berry Alloc harðparket parket frá Álfaborg. Þá eru flísar á forstofum frá Álfaborg.
Allar innihurðar endurnýjaðar en þær eru frá Ebson.
Baðherbergi hússins hafa verið endurnýjuð að hluta. Þannig eru nýjar baðinnréttingar, speglar, blöndunar- og sturtutæki o.sfrv.
Nýtt ullarteppi á stigum frá Álfaborg.
Epoxy sett á gólf í geymslu í kjallara.
Steyptar tröppur endurbyggðar og filteraðar ásamt því að þær voru sílanbornar.
Gert var við austurgafl hússins, hann endurmúraður og filteraður.
Grasbali sléttaður að hluta og þökulagður.
Viðhald samkvæmt fyrri eigendum:
Árið 2023 voru ofnar endurnýjaðir.
Árið 2016 var þakjárn endurnýjað.
Nánari upplýsingar veitir:
Snorri Björn Sturluson löggiltur fasteignasali / fasteignasali í síma 699-4407 eða snorribs@valholl.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.