Háborg og Jórunn lögg.fasteignasali kynna í einkasölu Maríugötu 3 íbúð 201 stór 2ja herbergja, 210 Garðabæ. Íbúðin er á 2.hæð en gengið beint inn af bílaplani að norðanveðru. Þegar komið er inn í íbúðina er opin forstofa inn í hol. Í forstofu eru góðir fataskápar. Hjónaherbergið er mjög rúmgott og bjart með góðum fataskápum. Baðherbergið er rúmgott og með glugga. Á baði er góð snyrtiaðstaða, sturta gengið beint inni, skápur undir handlaug og spegill fyrir ofan. Einnig er á baði aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Eldhúsið er með góðri innréttingu með dökkum efri skápum og viðaráferð á öðrum skápum. Úr stofu er útgengt út á sérafnotaflötur eftir endilangri íbúðinni, búðið að leggja flísar á flötinn. Möguleiki á heitum potti. Einnig eru 7 fm svalir til suðurs með útgengi úr stofu. Stofan er björt og rúmgóð með gólfsíðum gluggum. Útsýni yfir á golfvöllinn Oddur (hola 3) sem er í nokkra metra fjarlægð, útsýni frá stofu á golfvöllinn. Á gólfum er parket fyrir utan baðherbergið sem er flísalagt.
Staðsetning: frábær aðstaða fyrir barnafólk, leikvöllur Vinagarður, grunnskólar, golfvöllurinn Oddur i göngufæri. Einnig stutt i verslun og þjónustu. Stofnbrautir í allar áttir.
Pantið skoðun, Jórunn lögg.fasteignasali i síma 8458958 eða jorunn@miklaborg.is Húsið:Húsbyggjandi: Breiðahvarf ehf
Aðalhönnuður: Úti inni arkitektar: Baldur Svarvarsson
Verkfræðihönnun: Víðsjá
Raflagnahönnun: Lumex: Helgi Eiríksson
Maríugata 3. Er stórglæsilegt og einstaklega flott hannað 24 ibúða fjölbýlishús á sex hæðum.
* Vandaðar eldhús innréttingar frá JKE innréttingum, hvítur svefnherbergisskápur og eldhúsið með svörtum efri skápum og dökkri viðaráferð.
* Span helluborð og vifta. Blásturbakarasofn allt frá AEG, vifta
* Blöndunartækin eru frá viðurkenndum framleiðanda
* Úti Inni arkitektar sér um alla hönnun á húsi
Húsfélag: Í húsinu er virkt húsfélag með Maríugötu 1-3. Mánaðargjaldið er kr 19.320.-. Engar yfirstandandi eða væntanlegar framkvæmdir á vegum húsfélagsins.
Staðsetning: Húsið er vel staðsett nálægt Urriðaholtsskóla, sem er grunn- og leikskóli hverfisins. Einn besti golfvöllur landsins (Oddur) er í göngufæri og sömuleiðis útivistarsvæðin í Heiðmörk, Vífilstaðarhrauni og við Urriðavatn. Efst á Háholti er gert ráð fyrir blandaðri byggð íbúða og þjónustu s.s verslun, heilsugæslu, skólum og íþróttamannvirkjum.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Jórunn lögg.fasteignasali í síma 845-8958 eða jorunn@miklaborg.is