Trausti fasteignasala kynnir einbýlishús á góðri tæplega 650 fm lóð við Skagabraut á Akranesi. Eign miðsvæðis þar sem stutt er í alla þjónustu. Frábært tækifæri fyrir laghentan einstakling/iðnaðarmann.
Eignin er laus við kaupsamningSkv. Þjóðskrá Íslands er eignin skráð 177,4 fm þar af 36,3 fm bílskúr
Nánari upplýsingar hjá Sólveigu í síma
869-4879 eða á solveig@trausti.is og Kristjáni í síma
867-3040 eða á kristjan@trausti.is
Nánar um eignina:Anddyri með fatahengi. Flísar á gólfi.
Eldhús með upprunalegri innréttingu. Helluborð og ofn í vinnuhæð. Ísskápur og uppþvottavél fylgja. Flísar milli efri og neðri skápa. Dúkur á gólfi.
Rúmgóð
stofa/borðstofa með stórum gluggum. Panill í lofti. Gengið er út á pall úr stofu. Teppi á gólfi.
Gengið er upp teppalagðan stiga á
stigapall með góðum skáp sem geymir öll svefnherbergi hússins ásamt baðherbergi.
Hjónaherbergi með góðum skáp. Parket á gólfi.
Herbergi II með teppi á gólfi.
Herbergi III með litlum skáp. Teppi á gólfi.
Baðherbergi með glugga. Upprunaleg innrétting. Baðkar og sturta. Salerni. Dúkur á gólfi.
Gengið er niður teppalagðan stiga innan eignar í geymslu og þvottahús.
Auka
baðherbergi með salerni og handlaus er í geymslu/þvottahúsi.
Stór og góður
bílskúr með tengi fyrir vatn og rafmagni.
Stór og góð lóð er í kringum húsið.
Um er að ræða eign sem þarfnast mikils viðhalds og væntumþykju. Tilvalið verkefni fyrir laghentan einstakling eða iðnaðarmann.Um dánarbú er að ræða og því þekkir seljandi ekki meira til eignarinnar en kemur fram í lýsingu og opinberum gögnum. Því hvetur seljandi væntanlegan kaupanda að gæta sérstakrar árverkni við skoðun á eigninni.Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Sólveig Regína Biard löggiltur fasteignasali, í síma 869-4879 eða á netfanginu solveig@trausti.is og Kristján í síma 867-3040 eða á kristjan@trausti.is