DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 25. júní 2026

Eirhöfði 7

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
130.4 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
133.900.000 kr.
Fermetraverð
1.026.840 kr./m2
Fasteignamat
104.150.000 kr.
Brunabótamat
83.170.000 kr.
Mynd af Hrafnkell P. H. Pálmason
Hrafnkell P. H. Pálmason
Löggiltur fasteignasali
www.fastlind.isEignalisti
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2534472
Landnúmer
233296
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
00
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Leigulóð
Inngangur
Sameiginlegur
Hrafnkell Pálmi lgf. og Umbra kynna með stolti vandaðar og glæsilegar íbúðir við Eirhöfða 7, 110 Reykjavík.
Húsið situr úti á hamrinum og gefur einstakt og fallegt útsýni yfir borgina, til Esjunnar, Skarðsheiði og á góðum dögum yfir til Snæfellsjökuls.
Byggt er með áherslu á hagstæða afstöðu húsa fyrir skjól og birtuskilyrði.


Íbúð 001
Nútímaleg íbúð fyrir þína framtíð.
Hlýlegt heimili með sérsmíðuðum Voké-III innréttingum, flísalögðu anddyri og baðherbergi. Miele eldhústæki fylgja (ofn, span-helluborð). GROHE tæki eru á baði og í eldhúsi.
Stílhrein hönnun og vönduð gæði. Íbúðin er með vélrænni loftræstingu. 4ra herbergja vel skipulögð íbúð á jarðhæð með sérverönd.

 
Herb. - 4
Birt stærð - 130.4 m2
Þar af geymsla - 5.2 m2
Geymsla merkt - 107
Bílastæði merkt - B06
Litaþema - Grásteinn

Nánari upplýsingar:
Hrafnkell Pálmi lgf. /  690 8236 /  hrafnkell@fastlind.is
Atli lgf. /  662 4252 /  atli@fastlind.is


Ártúnshöfði stendur á tímamótum. Þar er að rísa nýr og spennandi borgarhluti þar sem nútímaleg byggð, fallegt borgarumhverfi og framúrskarandi samgöngur mynda grunn að eftirsóttu framtíðarhverfi.

ATH. meðfylgjandi myndir eru úr sýningaríbúð og endurspegla ekki allar eignir í húsinu.

UMBRA20
Við Eirhöfða 7 býðst kaupendum að nýta sér UMBRA20 fjármögnunarleiðina, sem getur auðveldað leiðina að eigin húsnæði með aðeins 10% útborgun.
Nánari upplýsingar má finna á UMBRA20 eða hafa beint samband við fasteignasala.


Gæða íbúðir: Fallegar og fjölbreyttar íbúðir með sérsmíðuðum innréttingum af háu gæðastigi, vönduð heimilstæki frá Miele. Íbúðir á efri hæðum eru með stórum þakgarði/þaksvölum ásamt því að sameiginlegur inngarður er fyrir alla íbúa hússins.

Innanhússhönnun. Hönnuðirnir: Að innanhússhönnun koma tveir hönnuðir. Það eru þær Rut Káradóttir og Thelma Guðmundsdóttirog hafa þær lagt fram fimm þemu fyrir efnisval og liti í íbúðunum.
Rut Kárdóttir hefur þegar getið sér góðs orðs en hún lærði innanhússarkitektúr í Istituto Europeo di Design í Róm og útskrifaðist þaðan árið 1993. Það sem er einkennandi í hennar hönnun eru einföld og stílhrein form þar sem vönduð efni og lýsing hjálpa til við að skapa sígilt en um leið hlýlegt yfirbragð. Thelma Guðmundsdóttir er innanhússhönnuður hjá Arkís og lítur hún gjarnan til náttúrinnar í sinni hönnun. Hennar helsti innblástur við hönnun á þemunum var hið óviðjafnanlega útsýni yfir hafið og fjöllin.

Inngarðurinn: Garðurinn er hannaður af landslagsarkitektinum Aðalheiði Kristjánsdóttur og hefur bæði sérafnotareiti og sameiginleg svæði. Gott aðgengi er að garðinum sem stendur það hátt að úr honum er einnig frábært útsýni.

Hnarreist á hamrinum: Arkitekt bygginganna er Arnar Þór Jónsson hjá Arkís og segir hann að ný hugsun hafi verið tekin inn í hönnunarferlið sem gefur betra aðgengi að inngarðinum fyrir hjólafólk og gangandi vegfarendur.

Útlitið mikilvægt: Í deiliskipulaginu er lagt mikið uppúr útliti húsanna þannig að þau séu falleg í umhverfinu upp á hamrinum. Skoðað var hverjar væru aðalvindáttirnar til þess að hámarka skjól í inngarðinum og rannsakað var hvernig hægt væri að hanna byggingarnar þannig að inngarðurinn fengi sem flestar sólarstundir.

Umhverfið: Húsið að Eirhöfða 7 er staðsett beint fyrir ofan ósa Elliðaáa og skartar útsýni yfir Vogahverfið, út á sjóinn og einkennisfjöll borgarinnar, Akrafjall og Skarðsheiði. Síðan er Esjan til norðurs í allri sinni dýrð. Staðsetningin er góð hvað varðar samgöngur, Ártúnsbrekkan einkar nærri sem og net göngu- og hjólastíga. Þá er ein frábærasta útivistarperla borgarinnar, Elliðaárdalur í göngufæri.

Eirhöfði 7 - 001 , 110 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 00-01, fastanúmer 253-4472 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Eirhöfði 7 - 001 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 253-4472, birt stærð 130.4 fm.

-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 
    Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2025
Fasteignanúmer
2534472
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B0
Númer eignar
6
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.920.000 kr.

Myndir (48)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hafnarbraut 10a - 102
VRayCam004.jpg
Hafnarbraut 10a - 102
200 Kópavogur
128.2 m2
Fjölbýlishús
413
913 þ.kr./m2
116.990.000 kr.
Skoða eignina Gulaþing 6
Skoða eignina Gulaþing 6
Gulaþing 6
203 Kópavogur
118.3 m2
Fjölbýlishús
413
801 þ.kr./m2
94.800.000 kr.
Skoða eignina Hallgerðargata 5 (307)
Opið hús:30. júní kl 12:15-12:45
Hallgerðargata 5 (307)
105 Reykjavík
105.6 m2
Fjölbýlishús
321
993 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Skoða eignina Espigerði 2
Bílastæði
Skoða eignina Espigerði 2
Espigerði 2
108 Reykjavík
166.9 m2
Fjölbýlishús
514
688 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin