Margrét Rós, lgf. og Fasteignasalan TORG kynna í sölu vel skipulagt og fjölskylduvænt endaraðhús á tveimur hæðum með aukaíbúð í kjallara og bílskúr í bílskúrslengju við Brekkubæ 24 í Árbæ. Um er að ræða þó nokkuð endurnýjaða eign á vinsælum stað í Árbænum. Eignin skiptist í forstofu, gestasnyrtingu, bjart alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, aukaíbúð með sérinngangi í kjallara og bílskúr. Frá stofu er útgengt út á rúmgóðan um 120 m2 suðursólpall, byggðan árið 2022, með heitum og köldum potti, úti sánu og garðskýli sem býður upp á frábæra aðstöðu til útiveru allt árið um kring. Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Rós Löggiltur fasteignasali, í s. 856-5858 eða margret@fstorg.is - *** SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR *** Birt stærð eignar samkvæmt fasteignaskrá HMS er 244,5 m² og skiptist í 167,8 m² aðalíbúð, 53,8 m² aukaíbúð og 22,9 m² bílskúr.Á síðustu árum hefur eignin verið endurnýjuð bæði að innan og utan. Eldhús, baðherbergi og gestasnyrting hafa verið endurnýjuð ásamt gólfefnum og innihurðum á stórum hluta eignarinnar. Árið 2022 var útbúin aukaíbúð í kjallara og glæsilegur suður-sólpall byggður. Árið 2024 voru gluggar yfirfarnir, skipt um gler og lista eftir þörfum og múrverk lagfært. Þak var yfirfarið og málað árið 2023 og svalir við hjónaherbergi endurnýjaðar. Eignin er einnig vel búin tæknilausnum, þar á meðal ljósleiðara, mesh-netkerfi, Ring dyrabjöllu, myndavélakerfi og snjallstýringu fyrir heitan pott og saunu. Frábær fjölskyldueign með möguleika á leigutekjum.
Staðsetning eignarinnar er einstaklega góð á eftirsóttum og fjölskylduvænum stað í Árbænum. Stutt er í leik- og grunnskóla, verslun, íþróttaaðstöðu, sundlaug og alla helstu þjónustu. Þá eru Elliðaárdalurinn og fjölbreytt útivistarsvæði í örfárra mínútna göngufæri með fallegum göngu- og hjólaleiðum.
Lýsing eignar:Neðri hæð - Forstofa með fataskáp. Gestasnyrting. Rúmgott og bjart alrými með samliggjandi stofu, borðstofu og nýlegu eldhúsi með góðu skápaplássi og vönduðum innbyggðum heimilistækjum. Frá stofu er útgengt út á glæsilega 120 m
2 afgirta timburverönd sem snýr í suður, með heitum og köldum potti, sánu og garðskýli sem myndar einstakt útivistarrými fyrir alla fjölskylduna.
Efri hæð - Á efri hæð eru fjögur rúmgóð svefnherbergi, fataherbergi (var áður sjónvarpshol) og rúmgott baðherbergi. Hjónaherbergi er með útgengi á nýlega uppgerðar svalir með viðargólfi og glerhandriði. Barnaherbergin eru þrjú en eitt þeirra er í dag innréttað sem sjónvarpsherbergi/skrifstofa. Baðherbergi hefur verið endurnýjað með stórri walk-in sturtu, hita í gólfi, flísum á veggjum og gólfi ásamt glugga með opnanlegu fagi sem veitir góða birtu..
Aukaíbúð í kjallara - Rúmgóð aukaíbúð með sérinngangi sem býður upp á fjölbreytta nýtingu og góðum leigutekjum. Íbúðin er 70 m² (skráð 53 m²) og skiptist í bjart alrými, eldhús, baðherbergi með sturtu og tvö rými með góðri loftræstingu sem hefur verið nýtt sem bíóherbegi annars vegar og geymsla hins vegar. Auk þess er sérstakt vínkæli-/kaltherbergi sem rúmar allt að 300 vínflöskur. Íbúðin er nýlega endurnýjuð (2022) með gólfhita í öllum rýmum, míkrósementi, fataskápum, innréttingum, flísum á bað og þvottaaðstöðu.
Bílskúr - Sér bílskúr í bílskúrslengju, 22,9 m², með epoxy-kvartsgólfi sem endurnýjað var árið 2022. Ný bílskúrshurð og hurðaopnari voru sett upp árið 2024. Rafmagn hefur verið endurnýjað, rafbílahleðsla sett upp og netsamband lagt í bílskúr. Góð lofthæð er í skúrnum með millilofti, miklu hilluplássi og góðri þvottaaðstöðu.
Tæknibúnaður - Eignin er vel tæknivædd með ljósleiðara og netsnúrum milli allra hæða ásamt öflugu mesh þráðlausu netkerfi. Ring dyrabjalla, myndavélakerfi, snjalllæsing með lyklaborði, snjallstýring fyrir heitan pott og sánu ásamt hita- og rakamælum á öllum hæðum fylgja með við sölu.
FÁÐU FRÍTT VERÐMAT Á ÞÍNA EIGN HÉRFramkvæmdir og viðhald undanfarin ár:(Samkvæmt seljanda og fyrri sölulýsingu)2024 - Allir gluggar yfirfarnir.
- Skipt um gler og lista eftir þörfum.
- Múrverk yfirfarið og lagfært.
- Ný bílskúrshurð og hurðaopnari.2023 - Þak yfirfarið og málað.
- Svalir við hjónaherbergi endurnýjaðar með nýju viðargólfi og glerhandriði.2022 - Um 120 m² suðursólpall byggður.
- Heitur pottur, kaldur pottur, úti sána og garðskýli sett upp.
- Snjóbræðsla lögð fyrir framan hús.
- Eldhús endurnýjað ásamt heimilistækjum.
- Baðherbergi og gestasnyrting endurnýjuð.
- Gólfefni og innihurðir endurnýjuð víða.
- Aukaíbúð endurnýjuð með gólfhita, míkrósementi, nýrri innréttingu, fataskápum og þvottaaðstöðu.
- Epoxy-kvartsgólf lagt á bílskúr.
- Rafmagn endurnýjað í bílskúr og rafbílahleðsla sett upp.2019 - Svalagólf, tröppur niður á pall og anddyri endurnýjuð.Fyrir um 10 árum - Þakkantur endurnýjaður.Nánari upplýsingar veita:Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s.
856-5858 /
margret@fstorg.isAðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s.
773-3532 /
adalsteinn@fstorg.isKÍKTU Í HEIMSÓKN TIL MÍN Á FACEBOOK
VILTU VITA HVAÐ VIÐSKIPTAVINIR OKKAR HAFA SEGJA? SMELLTU HÉRUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.